Hvetja til virkrar samveru á Menningarnótt 16. ágúst 2015 12:00 Saman Hópurinn hefur látið framleiða skemmtilegar auglýsingar sem sýna samveru foreldra og barna.
Saman Hópurinn hvetur til virkrar samveru foreldrar og barna á Menningarnótt um næstu helgi en rannsóknir hafa sýnt að hún er ein besta forvörnin gegn óreglu barna- og unglinga „Virk samvera fjölskyldna er þegar börn og foreldrar verja tíma saman og allir taka þátt.“ Þetta segir Edda Davíðsdóttir, tómstundarfulltrúi Mosfellsbæjar, en hún ásamt fleirum stendur að Saman hópnum. Saman Hópurinn er grasrótarhreyfing fólks sem stofnuð var 1999 og hefur verið virk allar götur síðan. Markmið starfsins er að styrkja og styðja foreldra í uppeldishlutverkinu. Hópurinn hefur frá stofnun sent frá sér skilaboð á tímamótum eins og um jól og áramót, fyrir verslunarmannahelgi og viðburði á borð við Menningarnótt. „Við viljum hvetja fjölskyldur til að njóta alls þess sem Menningarnótt hefur upp á að bjóða saman og fara svo saman heim þegar kvölda tekur,“ segir Guðrún Halla Jónsdóttir, félagsráðgjafi í Miðgarði og meðlimur Saman hópsins. „Við teljum ekki æskilegt að börn eða unglingar taki þátt í næturlífinu sem fylgir Menningarnótt. Viðburðurinn hefur upp á svo margt fallegt að bjóða sem er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að njóta og fara svo til síns heima saman.“Rannsóknir hafa sýnt að virk samvera barna og foreldra sé ein besta forvörnin gegn óreglu barna og unglinga og hafi jákvæð og þroskandi áhrif á kynslóðina sem er að vaxa úr grasi. „Það er líka bara svo skemmtilegt að verja tíma með börnunum sínum,“ segir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsráðgjafi hjá Borgarbyggð en hún ásamt Eddu, Guðrúnu og fleirum stendur að hópnum. „Okkur finnst leitt að sjá þegar unglingar fara einir og eftirlitslausir á útihátíðir eða skemmtanir. Það er svo margt annað hægt að gera skemmtilegt í faðmi fjölskyldunnar. Útihátíðarnar fara ekki neitt. Það er um að gera að fara seinna þegar tilskildum aldri er náð.“ Fjölmargir aðilar og samtök standa við bakið á Saman Hópnum. Má þar nefna Akureyrarbæ, Borgarbyggð, Grindavík, GuðjónÓ - Vistvæna prentsmiðjan, Kópavogsbær, Landsbankann, Lýðheilsusjóð, Reykjavíkurborg, Súðavíkurhrepp, Seyðisfjarðarkaupstað og Vestmannaeyjabæ. Hægt er að kynna sér allt um hópinn á www.samanhopurinn.is „Stuðningurinn hefur verið ómetanlegur í gegnum árin og við sjáum jákvæða þróun í þessum málum sem okkur er svo annt um,“ segir Inga „Ég vona að fjölskyldur verji Menningarnótt saman í að gera eitthvað skemmtilegt. Saman Hópurinn hefur mjög heilbrigð og jákvæð skilaboð fram að færa sem ég vona að sem flestir tileinki sér.“Hér má sjá eina af auglýsingum hópsins.
Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira