Íslenski boltinn

Stríddu Kassim á golfvellinum | Myndband

Kassim skilur ekkert í þessu.
Kassim skilur ekkert í þessu.
Steven Lennon fór illa með liðsfélaga sinn, Kassim Doumbia, á golfvellinum í dag.

Þá fóru leikmenn FH á golfvöllinn í Öndverðarnesi og spiluðu einn hring. Nauðsynlegt að taka frí frá fótboltavellinum einstaka sinnum.

Lennon ákvað að stríða félaga sínum og setti gervikúlu á tíið hans. Kúlan sprakk svo með látum er Kassim hitti hana.

Hann virtist lítið skilja í þessu en allir aðrir hlógu dátt að þessu eins og sjá má á myndbandinu hans Lennon hér að neðan.

Gave kassim "the dream" a fake golf ball at our golf day ! Where is the ball? The ball is break #whataman #fh #golfday

A video posted by Steven lennon (@stevenlennon7) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×