Spyr hvort bann Reykjavíkurborgar nái einnig til lyfja fyrir MS-sjúklinga

Ráðherrann spyr meðal annars hvort bannið nái til vara sem arabíski minnihlutinn í Ísrael framleiði, til arabískra þingmanna á Ísraelsþingi, til ísraelskra verksmiðja „þar sem tugir þúsunda Palestínumanna starfa“ og hvort einnig standi til að sniðganga lyfið Copaxone sem ætlað er MS-sjúklingum.
„Ef svarið við öllum þessum spurningum er „já“, þá skal ég láta kyrrt liggja og óska ykkur ánægjulegs lífs þar til kemur að hinu óumflýjanlega hjartaáfalli (sem er leitt en gangráðurinn var líka fundinn upp í Ísrael). Hinn möguleikinn er að einhver í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki hugsað þetta mál til enda,“ segir í greininni.
Engin samsvörun milli stærðar deilunnar og umfjöllunar
Lapid heldur svo áfram að fjalla um deilur Ísraela og Palestínumanna og segir þær eina minnstu deilu Miðausturlanda. „Í raun er engin samsvörun milli stærðar deilunnar og fjölmiðlaumfjöllunar um hana.“
Hann segir þó ekki geta hunsað þá staðreynd að „nokkur þúsund saklausra“ hafi látið lífið í átökum Ísraela og Palestínumanna.
„Mér finnst það hræðilegt. Það heldur fyrir mér vöku og svo er um flesta Ísraelsmenn. Að auki má benda á þá staðreynd – sem sem auðvelt er að sannreyna – að á 67 árum voru færri saklausir Palestínumenn drepnir en á einum mánuði (!) í Sýrlandi. Á þessu sama tímabili létu um 12 milljónir manna lífið í Arabaheiminum. Einfaldur útreikningur sýnir að deila Ísraels og Palestínu olli dauða 0,01% af þeim sem féllu í átökum í heimi múslíma.
Hver er þá afstaða borgarstjórnar Reykjavíkur gagnvart heimi múslíma? Hyggst borgarstjórnin sniðganga hann líka? Í heild?“ spyr Lapid.
Lesa má grein Lapid í heild sinni hér.
Tengdar fréttir

Ráðherra segir sniðgöngu áhrifalausa
Utanríkisráðherra segir það hafa engin áhrif þótt borgin sniðgangi ísraelskar vörur. Hann efast um að ákvörðunin standist lög um opinber innkaup.

Áréttar að ákvörðun borgarstjórnar sé ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands
Reykjavíkurborg ákvað í vikunni að sniðganga ísraelskar vörur meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir.

Gyðingar vilja sækja rétt sinn vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar
Evrópska gyðingaþingið íhugar að sækja rétt sinn fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni á grundvelli sáttmála stofnunarinnar sem Ísland og Ísrael eru aðilar að

Vissu ekki hvaða vörur þau voru að sniðganga
Borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar vissu ekki hvaða vörur þeir voru að sniðganga þegar borgin samþykkti tillögu um viðskiptabann á vörur frá Ísrael í nafni mannúðar og samstöðu með Palestínumönnum.

Ísraelskur ríkisborgari biður stöðumælaverði um að sekta sig ekki
Bíleigandi bað stöðumælaverði um að virða það að hann sé ísraelskur ríkisborgari, og því megi þeir ekki sekta hann fyrir stöðubrot.

„Mátti auðvitað búast við viðbrögðum“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hörð viðbrögð við ákvörðun borgarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael ekki hafa komið sér á óvart. Unnið sé að því að útfæra ákvörðina eins vel og hægt sé.