Þar segir að farþegaspá Icelandair gefi góða vísbendingu um hversu mikið erlendum ferðamönnum muni fjölga og að ef tengslin á milli fjölda farþega hjá Icelandair og fjölda ferðamanna haldist óbreytt megi búast við að ferðamenn hér landi verði um 1,5 milljón á næsta ári.
Mun skila miklum gjaldeyristekjum
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það ekki koma á óvart að fjölgunin muni verða svo mikil á næsta ári. Hún segir það vera í takt við þá fjölgun sem hefur verið undanfarin ár. Hún segir tækifæri felast í aukningunni.

Hafa lengi beðið eftir stjórnvöldum
Helga segir þó ljóst að byggja þurfi upp innviði til að hægt sé að taka á móti þessum fjölda.
„Góðu fréttirnar eru að við eigum stórt land, við getum dreift ferðamönnum svo miklu betur. Við höfum verið að ná árangri í að dreifa þeim og auka ferðamannafjöldann yfir veturinn þannig við dreifum ferðamönnum yfir allt árið en það er alveg ljóst að við verðum að tryggja sjálfbæra aukningu með aukinni uppbyggingu innviða,“ segir hún.
En er það ekki of seint núna þegar fyrirséð er að fjöldi ferðamanna verði orðinn svona mikill strax á næsta ári?
„Við erum búin að vera að kalla eftir uppbyggingu alveg þessi ár en því miður hefur gengið illa að sjá að stjórnvöld láti verkin tala. Við viljum trúa því að það gerist eitthvað núna í tengslum við þessa stefnumótun ef að stjórnvöld hafa áhuga á því almennt að byggja upp þess atvinnugrein og nýta þau tækifæri sem í henni felast,“ segir hún.