37 féllu í tveimur sjálfsmorðsárásum Samúel Karl Ólason skrifar 12. nóvember 2015 21:11 Talið er að þriðji árásarmaðurinn hafi látið lífið í seinni sprengingunni. Vísir/AFP
Minnst 37 manns létu lífið og rúmlega 180 særðust í tveimur sjálfsmorðsárásum í Beirút í Líbanon í dag. Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum sem gerðar voru suðurhluta borgarinnar sem er eitt að höfuðvígum Hezbollah samtakanna. Samtökin taka nú virkan þátt í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi og meðlimir þeirra berjast við hlið stjórnarhers Assad. Þetta er ein af skæðustu hryðjuverkaárásum síðari ára í Líbanon, samkvæmt AP fréttaveitunni. Vígamenn ISIS segja að þeir hafi sprengt mótorhjól hlaðið sprengiefnum fyrst. Þegar íbúar fylktust á vettvang var maður með sprengjubelti meðal þeirra. Hann sprengdi sig svo í loft upp í miðri þvögunni. Þá hafa borist fregnir af því að þriðji árásarmaðurinn hafi fundist þar nærri. Sprengjubelti hans var ósprengt, en talið er að hann hafi látið lífið í seinni sprengingunni.
Mið-Austurlönd Mest lesið Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Innlent Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Erlent „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Innlent Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Innlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Innlent Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun Innlent Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Erlent Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Erlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Sjá meira