Tók upp myndband í heimsókn til Íslands Gunnar Leó Pálsson skrifar 12. janúar 2015 10:30 Unnur Eggertsdóttir kann vel við sig í New York, þar sem hún býr núna. Vísir/Vilhelm „
Við tókum upp myndbandið núna þegar ég kom heim, það er svo gott að klára þetta hér heima því hér á maður svo auðveldan aðgang að frábæru fólki,“ segir söngkonan og leiklistarneminn Unnur Eggertsdóttir. Hún dvaldi hér á landi yfir jól og áramót og ákvað að nýta tímann til þess að taka upp tónlistarmyndband við nýtt lag. Lagið ber titilinn Í nótt og vann hún það í samvinnu við upptökuteymið StopWaitGo. „Lagið var tekið upp fyrir svolitlu síðan og því kjörið að klára þetta núna.“ Ingimar Eydal tók myndbandið upp, Rakel Unnur Thorlacius stíliseraði og Ástrós Erla sá um hár og förðun. Unnur, sem lék m.a. Sollu stirðu í Latabæ og tók þátt í undankeppni Eurovision 2013, stefnir þó ekki á að gefa út plötu á næstunni. „Plötuútgáfa er ekki á dagskrá svona í náinni framtíð. Ég vil einbeita mér hundrað prósent að náminu og sinna því eins vel og ég get. Það eru þó þvílík forréttindi að geta komið heim og hent út einu og einu lagi, þótt þau séu ekki endilega hluti af stærri listrænni mynd." "Í augnablikinu finnst mér þetta skemmtilegast og þá vil ég gera bara akkúrat það. Svo seinna mun ég kannski vilja gefa út plötu í allt öðrum stíl og segja skilið við poppið. Það eru til svo margar sögur af leiklistarnemum sem hipsterast svo við námið að kannski á næsta ári mun ég gefa út vínylplötu á færeysku. Ég útiloka ekkert,“ segir Unnur og hlær. Hún er að læra leiklist við skólann The American Academy of Dramatic Arts í New York. „Ég dýrka New York,“ segir Unnur og bætir við: „Ég er mjög ánægð með námið. Þetta var sjúklega erfið önn en ég er búin að læra ótrúlega mikið.“ Hún hefur þó náð að njóta lífsins með náminu úti og kynntist frægri persónu. „Ég og Chantel Riley, stelpan sem leikur Nölu í Lion King á Broadway, erum orðnar fínar vinkonur. Ég kom samt varla upp orði þegar ég hitti hana fyrst, slefaði bara og muldraði að mér fyndist hún frábær. Næst á dagskrá er að drösla henni til Íslands,“ segir Unnur og hlær.
Eurovision Tónlist Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira