Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Alls taka 36 lönd þátt í Eurovision á næsta ári. Kanada tekur þátt í fyrsta sinn og Norður-Makedónía snýr aftur eftir fjögurra ára hlé. Spánn og Slóvenía hafa frest þar til í desember til að tilkynna um þátttöku. Ísland er ekki á lista en stjórn RÚV hefur gefið út að þau myndu ekki vilja að Ísland tæki þátt nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Sem hefur ekki verið gert. Tónlist 28.10.2026 12:47
Hætta við að hætta við að hætta við Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári eftir allt saman. Þjóðin sniðgekk keppnina í fyrra og ætlaði að gera það aftur í ár þar til að talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar NPO tilkynntu að þjóðin yrði með. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af þátttökunni, Hollendingarnir eru þar með hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt í Eurovision. Tónlist 27.10.2026 10:26
Sendum Möggu Stínu í Eurovision Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður á frækinn feril að baki. Þegar hann var að koma úr skápnum 25 ára gamall var faðir hans heitinn síðasta fyrirstaðan í veginum; grjótharður stuðningsmaður Miðflokksins og Trumps. Friðrik ræðir tónlistarbransann í ítarlegu viðtali, jólin og Eurovision, en hann vill helst senda Möggu Stínu til að keppa næst fyrir Íslands hönd. Lífið 11.10.2026 10:01
Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. Tónlist 13. ágúst 2026 18:03
Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. Tónlist 13. ágúst 2026 09:13
Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Nýjar reglur munu vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem haldin verður í Búlgaríu. Þær kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu. Lífið 12. ágúst 2026 16:17
Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Carola Häggkvist, ein ástsælasta söngkona Norðurlanda og sigurvegari Eurovision, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu þar sem hún flytur lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögur úr eigin lífi. Tónlist 11. ágúst 2026 14:25
Kanada tekur þátt í Eurovision Kanada tekur þátt í 71. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Lífið 1. júlí 2026 14:06
Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Kanada er orðinn fullgildur meðlimur í Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (e. EBU). Þetta þýðir að landið getur nú í fyrsta sinn tekið þátt í Eurovision. Lífið 29. júní 2026 12:12
86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Rúmlega 86 prósent landsmanna horfðu ekki á úrslitakvöld Eurovision sem haldið var í Vín í Austurríki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Rúmlega 27 prósent sögðust sakna þátttöku Íslands í keppninni en 73 prósent ekki. Innlent 22. júní 2026 17:51
Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig. Lífið 16. maí 2026 23:01
Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Seinni undanúrslit Eurovision fóru fram í Vínarborg í kvöld og komust tíu atriði áfram á úrslitakvöldið. Framlög Búlgaríu, Úkraínu og Noregs eru meðal þeirra sem birtast aftur á Eurovision-sviðinu í Austurríki á laugardag. Lífið 14. maí 2026 21:15
Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Það ríkir sannkölluð Eurovision stemning í Vín þessa dagana þar sem undirbúningur fyrir Eurovision söngvakeppnina stendur sem hæst. Lífið samstarf 14. maí 2026 09:32
Hvað veistu um… Eurovision? Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn. Lífið 13. maí 2026 20:00
Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. Lífið 13. maí 2026 14:07
Þau komust áfram í úrslit Eurovision Ísraelar, Svíar og Finnar eru meðal þjóða sem komust áfram í úrslit Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrri undanúrslitin voru haldin í kvöld. Lífið 12. maí 2026 21:49
Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí. Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast. Tónlist 10. maí 2026 11:55
Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Úrslitakvöld Eurovision í Vín 16. maí næstkomandi verður sýnt í beinni á Rúv 2 vegna kosningavöku sveitarstjórnarkosninganna en undankvöldin tvö, 12. og 14. maí, verða sýnd á Rúv. Ríkissjónvarpsstöðvar Slóveníu, Írlands og Spánar hafa tilkynnt að þær muni ekki sýna Eurovision í ár vegna þátttöku Ísraela í keppninni. Lífið 29. apríl 2026 14:39
Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip. Tónlist 21. apríl 2026 13:26
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. Lífið 16. apríl 2026 07:02
Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Rúnar Freyr Gíslason, leikari og verkefnastjóri hjá Rúv, situr í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ekki fer á milli mála hvað er efst á baugi hjá Rúnari þessa dagana: Ekkert gauf og ekkert hálfkák. Pólitíkin á hug hans allan þessa dagana. Lífið 16. mars 2026 13:11
Boy George keppir fyrir San Marínó Tónlistarmaðurinn Boy George, best þekktur sem söngvari Culture Club, mun koma fram með ítölsku söngkonunni Senhit fyrir hönd San Marínó í Eurovision í maí og syngja þar lagið „Superstar“. Tónlist 13. mars 2026 14:25
Lagið minnti á sig í sambandsslitunum „Lífið er of stutt til að sleppa því óþægilega,“ segir tónlistarkonan og Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir sem er mætt með endurkomu inn í tónlistarsenuna. Hún ræddi við blaðamann um árin eftir Eurovision, tónlistina, sköpunargleðina, ástina og lífið og frumsýnir hér tónlistarmyndband. Tónlist 27. febrúar 2026 08:31
Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Ingibjörg Stefánsdóttir var aðeins tvítug þegar hún söng með rave-sveitinni Pís of keik, keppti í Eurovision með laginu „Þá veistu svarið“og lék í Veggfóðri: Erótískri ástarsögu árið 1993. Hún tók í kjölfarið algjöra u-beygju, lærði jóga og hefur rekið Yoga Shala-jógastöðina í tuttugu ár. Lífið 9. febrúar 2026 10:27