Fundar með sendiherra vegna njósnamáls Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 3. júlí 2015 07:00 Angela Merkel kallaði sendiherra Bandaríkjanna á fund í gær vegna njósnamáls. fréttablaðið/epa
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, fundaði með sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi í gær til að ræða ný gögn sem Wikileaks birti á miðvikudaginn. Gögnin sýna fram á njósnir NSA, þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, um þýska ráðherra. Árið 2013 lak bandaríski uppljóstrarinn og fyrrverandi verktaki NSA, Edward Snowden, skjölum um njósnir stofnunarinnar um kanslarann Angelu Merkel en nú er ljóst að njósnirnar voru umfangsmeiri en áður var talið. Skjölin sýna að bandaríska þjóðaröryggisstofnunin hleraði 69 símanúmer háttsettra þýskra embættismanna, til dæmis ráðherra í ríkisstjórn Þýskalands auk aðstoðarmanna Merkel, frá árinu 2010 til ársins 2012. „Þetta er algjörlega fáránlegt,“ sagði Sigmar Gabriel, fjármálaráðherra Þýskalands. Thomas de Maiziere, innanríkisráðherra Þýskalands, sem ber höfuðábyrgð á öryggismálum, tók í sama streng. „Traust okkar til Bandaríkjanna hefur minnkað,“ sagði hann. „Skjölin sem birt voru í dag [á miðvikudaginn] sýna enn fremur fram á að umfang njósnastarfsemi Bandaríkjanna nær til Þýskalands og grunnstoða Evrópusambandsins,“ sagði Julian Assange, forsprakki Wikileaks, um lekann.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira