Arnór: Við áttum að loka þessu fyrr Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. janúar 2016 19:29 Arnór Atlason í baráttunni í kvöld. vísir/valli
Arnór Atlason stýrði sóknarleik íslenska liðsins þegar það vann Noreg, 26-25, í æsispennandi leik á EM 2016 í handbolta í kvöld. Arnór skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og lagði upp sigurmarkið fyrir Guðjón Val Sigurðsson tólf sekúndum fyrir leikslok. „Það var rosalega mikilvægt fyrir okkur að fá tvö stig í fyrsta leik. Ef eitthvað er þá áttum við að loka þessu fyrr,“ sagði Arnór við Vísi eftir leikinn.Sjá einnig:Alexander: Ég er með gæsahúð „Nú er það okkar að vinna Hvít-Rússana á sunnudaginn. Það kæmi okkur í góða stöðu fyrir restina af mótinu.“ Ísland var marki undir í hálfleik en í fyrri hálfleik var lítið að frétta í sóknarleiknum. „Í hálfleik töluðum við um að við vorum ekki að spila eins og við ætluðum. Við köstuðum boltum bara í ruslið og vorum að missa boltann,“ sagði Arnór. „Það var bara okkar að halda okkar leik áfram. Við vissum að við myndum vinna Noreg ef við héldum okkar leik. Það vantaði bara aðeins upp á í sókninni en auðvitað áttum við að loka þessu fyrr.“ „Það voru alltaf stigin tvö sem myndu telja í dag sama hvernig spilamennskan væri. Nú er það í okkar höndum að gera þessi stig enn þá stærri og mikilvægari.“ Arnór klúðraði dauðafæri þegar íslenska liðið var tveimur mönnum færri en það varð til þess að Noregur komst aftur inn í leikinn. „Það var frekar vond stund og því var gott að Bjöggi varði þetta lokaskot. Ég er búinn að þakka honum fyrir það,“ sagði Arnór og brosti breitt. Eftir leikinn sungu stuðningsmenn íslenska liðsins með hetjunum sínum, eitthvað sem er orðin hefð á landsleikjum. „Þetta kom á óvart og greinilega orðin mikil hefð. Það er gaman fyrir okkur gömlu mennina sem hafa verið í þessu svo oft að fá að taka þátt í þessu,“ sagði Arnór Atlason.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Adam Ægir mættur til KA Íslenski boltinn „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira