Noregur og Frakkar mætast í kvöld í úrslitaleik um sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í handbolta í Póllandi en liðin eru í harðri baráttu við heimamenn um tvö laus sæti í milliriðli eitt.
Norðmenn náðu aðeins jafntefli á móti Makedóníu í gær og hafa eins stigs forskot á Frakkland og Pólland. Pólverjar mæta Króötum í dag en sá leikur fer fram eftir leik Norðmanna og Frakka og pólska liðið veit þar með nákvæmlega hvað það þarf að gera til að komast í undanúrslitin.
TV2 í Noregi hefur borið saman byrjunarlið franska og norska liðsins og þar kemur í ljós gríðarlegur munur á reynslu manna.
Franska landsliðið hefur unnið tíu stórmótagull frá og með HM á Íslandi 1995 en Norðmenn hafa aldrei endað ofar en í sjötta sæti á stórmóti.
Thierry Omeyer, markvörður franska liðsins, hefur verið með í níu af þessum tíu gullliðum og blaðamaður TV2 vekur athygli á því að Sander Sagosen, leikstjórnandi Norðmanna, var enn fimm ára gamall þegar Omeyer vann sitt fyrsta gull á HM í Frakklandi 2001.
Byrjunarlið Frakka hefur leikið samanlagt næstum því þúsund fleiri landsleiki en byrjunarlið Norðmanna og hver leikmaður í franska landsliðinu hefur spilað 141 leik meira að meðaltali en leikmenn í því norska. Það munar líka talsvert á meðalaldrinum sem er 32,3 ár hjá Frökkum en 26,6 ár hjá Norðmönnum.
Hvergi er munurinn meiri en hjá markvörðunum Thierry Omeyer hjá Frakklandi og Espen Christensen hjá Norðmönnum. Omeyer hefur spilað 333 landsleiki eða 290 fleiri en Christensen.
Frakkar vita því nákvæmlega hvað þeir eru að fara út í seinna í dag en spennustigið hjá norska liðinu verður mikið spurningamerki. Það á líka eftir að koma í ljós hvernig klúðrið á móti Makedóníu í gær fer í norsku strákana.
Leikur Frakklands og Noregs hefst klukkan 17.15 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Frakka hjá TV2
Thierry Omeyer - 39 ára, 192 sm, 333 landsleikir, 9 gull
Michael Guigou - 33 ára, 179 sm, 223 landsleikir, 8 gull
Nikola Karabatic - 31 ára, 196 sm, 257 landsleikir, 8 gull
Daniel Narcisse - 36 ára, 188 sm, 285 landsleikir, 8 gull
Valentin Porte - 25 ára, 190 sm, 53 landsleikir, 2 gull
Luc Abalo - 31 ára, 182 sm, 201 landsleikur, 7 gull
Cedric Sorhaindo - 31 v, 192 sm, 155 landsleikir, 6 gull
Bryjunarlið Norðmanna hjá TV2
Espen Christensen - 30 ára, 190 sm, 43 landsleikir
Magnus Jöndal - 27 ára, 187 sm, 73 landsleikir
Espen Lie Hansen - 26 ára, 196 sm, 95 landsleikir
Sander Sagosen - 20 ára, 195 sm, 32 landsleikir
Harald Reinkind - 23 ára, 196 sm, 52 landsleikir
Kristian Björnsen - 27 ára, 191 scm, 50 landsleikir
Bjarte Myrhol - 33 ára, 194 sm, 176 landsleikir
Frakkar með næstum því þúsund fleiri landsleiki en Norðmenn

Tengdar fréttir

Omeyer frábær þegar Frakkar jörðuðu Króata
Frakkar eru komnir með sex stig í milliriðli 1 á EM í Póllandi eftir stórsigur á Króatíu í dag. Lokatölur 32-24, Frakklandi í vil.

Norðmenn töpuðu óvænt stigi gegn Makedóníu
Noregur verður í efsta sæti milliriðils 1 fyrir lokaumferðina á miðvikudag.

Norðmenn fyrstir til að leggja Pólverja
Norðmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu Pólverja að velli, 28-30, í milliriðli 1 á EM í Póllandi í kvöld.

Liðið sem tapaði fyrir Íslandi gæti komist í undanúrslit EM í kvöld
Norðmenn hafa unnið þrjá leiki í röð á EM í handbolta í Póllandi og gætu tryggt sér sæti í undanúrslitum í kvöld verði úrslit beggja leikja þeim hagstæð.