Kobe setti sjö þrista og batt enda á tíu leikja taphrinu Lakers Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2016 07:13 Kobe Bryant sækir á Úlfana í nótt. vísir/afp
Kobe Bryant spilaði eins og árið væri 2006 en ekki 2016 þegar Los Angeles Lakers komst loks aftur á sigurbraut í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lakers, sem var búið að tapa tíu leikjum í röð, vann fjögurra stiga sigur á Minnesota Timberwolves á heimavelli sínum, 119-115. Með því forðaðist liðið að bæta lengstu taphrinu liðsins frá upphafi, en Lakers hafði ekki tapað tíu leikjum í röð frá 1994. Kobe setti sjö þrista í nótt úr ellefu skotum og lauk leik með 38 stig, fimm fráköst og fimm stoðsendingar á 33 mínútum, en hann hitti úr 10 af 21 skoti sínu í heildina og setti niður ellefu af tólf vítaskotum. Louis Williams hjálpaði til með 20 stig, en hjá gestunum frá Minnesota var Andrew Wiggins stigahæstur með 30 stig. Spænski leikstjórnandinn Ricky Rubio skoraði 10 stig og gaf 15 stoðsendingar. Lakers-liðið er eftir sem áður rótfast við botn vesturdeildarinnar. Kobe og félagar eru aðeins búnir að vinna 10 leiki af 51 og eru fjórum leikjum á eftir Minnesota sem er sætinu fyrir ofan þá. James Harden var svo í miklu stuði fyrir Houston Rockets í nótt þegar liðið vann Miami Heat á heimavelli, 115-102. Harden jafnaði eigið met í NBA-deildinni og gaf 14 stoðsendingar í leiknum. „Hann spilar leikinn svo fallega. Hæfileikar hans eru vanmetnir. Fólk sér hann bara skora og skora en það sér ekki það sem hann býr til fyrir samherja sína,“ sagði J.B. Bickerstaff, þjálfari Houston, eftir leikinn. Harden var einnig stigahæstur hjá Houston í leiknum með 26 stig en Josh Smith kom næstur með 19 stig. Hjá gestunum frá Miami skoraði allt byrjunarliðið yfir 13 stig en stigahæstur var Dwayne Wade með 1 stig.Úrslit næturinnar: New York Knicks - Boston Celtics 89-97 Houston Rockets - Miami Heat 115-102 Phoenix Suns - Toronto Raptors 97-104 Portland Trail Blazers - Milwaukee Bucks 107-95 Los Angeles Lakers - Minnesota Timberwolves 119-115Staðan í deildinni.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira