Gasol ekki meira með á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2016 16:00 Marc Gasol. Vísir/EPA
Marc Gasol, miðherji Memphis Grizzlies, spilar ekki fleiri leiki á þessu NBA-tímabili og er það mikið áfall fyrir liðið að missa sinn besta leikmann. Gasol þurfti á laugardag að gangast undir aðgerð vegna fótbrots og þar með varð það ljóst að hann er úr leik það sem eftir lifir tímabilsins. Forráðamenn Memphis Grizzlies eru vissir um að Marc Gasol nái sér að fullu og snúi aftur heill heilsu á næsta tímabili. Marc Gasol skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Memphis Grizzlies síðasta sumar eftir frábært tímabil þar sem hann komst í byrjunarlið í Stjörnuleiknum og var valinn í úrvalslið ársins. Gasol hefur skorað 16,6 stig, tekið 7,0 fráköst og gefið 3,8 stoðsendingar að meðaltali í 52 leikjum á þessu tímabili. Hann var með 17,4 stig og 7,8 fráköst í leik í fyrra. Hann meiddist í leik á móti Portland 8. febrúar síðastliðinn. Grizzlies-liðið hefur unnið 2 af 3 leikjum sínum síðan liðið missti Marc Gasol í meiðsli. Memphis Grizzlies er eins og er í fimmta sæti í Vesturdeildinni með 32 sigra og 23 töp. Liðið er því á leiðinni í úrslitakeppnina svo framarlega sem liðið missi ekki dampinn. Grizzlies fékk til sín þá Chris Andersen, P.J. Hairston og Lance Stephenson áður en glugginn lokaði og lét frá sér í staðinn þá Courtney Lee og Jeff Green.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira