Ronaldo orðinn næstmarkahæstur í sögu spænsku deildarinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. mars 2016 08:00 Ronaldo fagnar einu marka sinna gegn Celta Vigo. vísir/getty
Cristiano Ronaldo gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu þegar Real Madrid burstaði Celta Vigo, 7-1, í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær. Með þessum fjórum mörkum skaust portúgalski snillingurinn upp í 2. sætið á listanum yfir markahæstu leikmenn spænsku deildarinnar frá upphafi. Ronaldo, sem hefur leikið með Real Madrid frá árinu 2009, hefur nú gert 252 mörk í aðeins 228 leikjum sem er ótrúleg tölfræði. Portúgalinn hefur því skorað 1,11 mörk að meðaltali í leik á ferli sínum á Spáni. Ronaldo hefur skorað einu marki meira en Telmo Zarra gerði fyrir Athletic Bilbao á árunum 1940-55. Efstur á listanum er Lionel Messi en hann hefur skorað 305 mörk frá því hann lék sinn fyrsta leik með Barcelona 2004. Messi og Ronaldo eru þeir einu af tíu efstu á markalistanum sem eru enn að spila. Ronaldo er sem stendur markahæstur í spænsku deildinni á þessu tímabili með 27 mörk, tveimur mörkum á undan Börsungnum Luís Suárez.Markahæstu leikmenn í sögu spænsku deildarinnar: 1. Lionel Messi (Barcelona) - 305 mörk 2. Cristiano Ronaldo (Real Madrid) - 252 3. Telmo Zarra (Athletic Bilbao) - 251 4. Hugo Sánchez (Atlético Madrid, Real Madrid, Rayo Vallecano) - 234 5. Raúl (Real Madrid) - 228 6. Alfredo di Stéfano (Real Madrid, Espanyol) - 227 7. César Rodríguez (Granada, Barcelona, Cultural Leonesa, Elche) - 223 8. Quini (Sporting Gijón, Barcelona) - 219 9. Pahino (Celta Vigo, Real Madrid, Deportino La Coruna) - 210 10. Edmundo Suárez (Valencia, Alcoyano) - 195
Spænski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira