Trump segir Sanders bera ábyrgð á ofbeldi á framboðsfundum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 14. mars 2016 07:00 Mótmælandi er fjarlægður af öryggisvörðum eftir að hann hljóp upp á svið á framboðsfundi Donalds Trump. Nordicphotos/AFP
Donald Trump, frambjóðandi í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, segir að óeirðirnar sem brutust út á framboðsfundi hans í Chicago síðastliðið föstudagskvöld og á laugardaginn séu Bernie Sanders, frambjóðanda í forvali demókrata, að kenna. „Þarna voru atvinnumótmælendur í þúsundatali frá Sanders og einnig í minna mæli frá Hillary,“ sagði Trump í þættinum State of the Union á CNN.Donald TrumpSanders hafnaði ásökunum Trumps á sama vettvangi. Hann sagðist vona að stuðningsmenn sínir væru ekki að trufla framboðsfundi en sagði að Trump ætti að líta sér nær þegar kæmi að óeirðunum. „Hann [Trump] er maður sem ýjar að ofbeldi, en þá færðu einmitt það sem þú kallar eftir,“ sagði Sanders. Sanders fullyrðir að fyrirmæli um að trufla framboðsfundi Trumps hafi ekki komið úr herbúðum sínum en hins vegar hefur sjálfstæður hópur stuðningsmanna Sanders lýst yfir ábyrgð á því að hafa truflað framboðsfund Trumps á föstudaginn. Fjöldi mótmælenda hefur mætt á framboðsfundi Trumps undanfarna mánuði en nú virðist byrjað að sjóða upp úr. Trump þurfti að hætta við framboðsfund sinn á föstudaginn.
Donald Trump Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira