Tugir starfsmanna Sameinuðu þjóðanna yfirgefa Vestur-Sahara Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2016 22:42 Ban Ki-moon átti fund með fulltrúum sjálfstæðishreyfingarinnar Polisario fyrr í vikunni. Vísir/AFP
83 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna yfirgáfu Vestur-Sahara í dag eftir að stjórnvöld í Marokkó ákváðu að vísa þeim úr landi. Harðar deilur hafa staðið um landsvæðið undanfarna daga. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna segir að ákvörðun Marokkóstjórnar sé mikið áfall fyrir friðargæslusveit stofnunarinnar í Vestur Sahara, Minurso, þar sem verið sé að reka bílstjóra, tæknimenn og fjarskiptasérfræðinga úr landi. Um fimm hundruð manns hafa skipað friðargæslusveitina. Deilurnar blossuðu upp þegar Ban Ki-Moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, reitti marokkósk stjórnvöld til reiði með því að segja Marokkóa hafa hernumið svæðið. Hann átti fund með fulltrúum sjálfstæðishreyfingarinnar Polisario fyrr í vikunni. Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1991 reynt að sjá til þess að samið sé um lausn á deilunni um landsvæðið sem er fyrrverandi spænsk nýlenda með landamæri að Marokkó og Alsír í norðri og norðaustri og Máritaníu í suðri. Marokkó lagði landið undir sig árið 1975.
Máritanía Vestur-Sahara Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira