Houston að missa af lestinni? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. apríl 2016 07:23 James Harden, leikmaður Houston. Vísir/Getty
Dallas vann afar mikilvægan sigur á Houston, 88-86, í NBA-deildinni í nótt en þessi tvö lið eru ásamt Utah að berjast um síðustu tvö sætin í úrslitakeppni vesturdeildarinnar. Þetta var fimmti sigur Dallas í röð sem hefur nú skotist upp í sjöunda sæti deildarinnar. Liðið er einum sigri á undan Utah, sem er í áttunda, og tveimur á undan Houston. Öll lið eiga fjóra leiki eftir og miðað við núverandi stöðu myndi Houston missa af úrslitakeppninni. Houston komst alla leið í úrslit vesturdeildarinnar í fyrra. JJ Barea skoraði 27 stig fyrir Dallas en Dirk Nowitzky hafði hægt um sig og skoraði aðeins sjö stig í átta skotum. Hann stöðvaði þó James Harden á lokasekúndum leiksins sem reyndist afar mikilvægt. Harden, ein stærsta stjarna NBA-deildarinnar, skoraði 26 stig fyrir Houston og Dwight Howard var með fjórtán stig og sextán fráköst. Efstu sex lið vesturdeildarinnar eru öll örugg áfram í úrslitakeppnina og það sama má segja um efstu sex lið austurdeildarinnar. Þar á eftir koma Indiana og Detroit, sem unnu bæði sína leiki í nótt og eru svo gott sem komin áfram. Indiana vann Cleveland örugglega, 123-109, en LeBron James var hvíldur hjá síðarnefnda liðinu. Paul George skoraði 29 stig fyrir Indiana og CJ Miles 21. Cleveland er efst í austurdeildinni og nánast öruggt með heimavallarrétt fram að lokaúrslitum úrslitakepppninar.Staðan í deildinni.Úrslit næturinnar: Indiana - Cleveland 123-109 Orlando - Detroit 104-108 Washington - Brooklyn 121-103 Boston - New Orleans 104-97 New York - Charlotte 97-111 Dallas - Houston 88-86 Portland - Oklahoma City 120-115 LA Lakers - LA Clippers 81-91
NBA Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira