Raforkuflutningskerfi: Þungstíga Ballerínan Magnús Rannver Rafnsson skrifar 14. apríl 2016 07:00 Kolefnisfótspor er löngu orðið staðlað hugtak í umhverfisfræðum og segir með skýrum hætti til um mælanleg áhrif tiltekinnar framkvæmdar, framleiðslu eða vöru á umhverfi sitt. Við reiknum út í þessu samhengi magn mengunarinnar sem skilin er eftir í umhverfinu og getum þannig mælt umhverfisgæði tiltekinnar vöru eða framleiðslu. Eðli málsins samkvæmt eru umhverfisgæðin meiri eftir því sem magn mengunarinnar sem ferlið getur af sér er minna. Þetta er meðal annars gagnlegt verkfæri þegar óábyrgir aðilar stíga fram með yfirlýsingar um umhverfisgæði verka sinna sem í reynd standast ekki skoðun. Nýlega kynnti Landsnet til leiks nýja gerð háspennumastra. Möstrin hafa fengið nafnið „Ballerína“ og eru kynnt sem afrakstur margra ára rannsóknar og þróunarvinnu sem kostaði mikla fjármuni, samkvæmt orðum þeirra Nils Gústavssonar og Sverris Jan Norðfjörð hjá Landsneti. Ekki hefur verið upplýst um hve miklu fjármagni varið hefur verið í þetta verkefni; við óskum hér með eindregið eftir þeim upplýsingum. Hins vegar hefur forstjórinn sjálfur tilkynnt að hér sé um að ræða „nýja kynslóð háspennumastra“ á Íslandi. Dýpstu kolefnisfótspor sem um getur Ballerínur eins og við þekkjum þær eru léttar í spori og ásýnd og svífa fyrirhafnarlaust um umhverfi sitt – leiksviðið. Það munu ballerínur Landsnets þó aldrei gera, enda einhver þyngsti klumpur af stáli sem stíga mun jörð á Íslandi, ef fer sem horfir. Sú staðreynd að klumpur þessi verði fluttur í heilu lagi frá útlöndum – svo virðist sem Landsnet ætli í alvörunni að flytja inn 30 metra löng mannvirki í heilu lagi erlendis frá – mun hvorki auka á hagkvæmni gjörningsins eða umhverfisvænleika. Þessi meinta ballerína verður svo þungstíg að hún mun skilja eftir sig í náttúrunni einhver dýpstu kolefnisfótspor sem um getur í sögu raforkuflutningskerfisins. Ekki grynnri verða sporin á hagkerfinu. Þetta er afrakstur margra ára rannsóknar og þróunarvinnu sem kostaði mikla fjármuni. Íslenskt landslag og íslensk náttúra er leiksvið, leiksviðið okkar sem við eigum saman, þ.e. síðast þegar ég vissi. Ég verð þó að viðurkenna, að með hverju misserinu sem líður og eftir því sem fundum og ráðum um íslenska náttúru fjölgar, þeim mun minna hef ég á tilfinningunni að svo sé. Ef ég væri stjórnandi ballettflokks og réði til mín fylkingu af klunnalegum ballerínum í yfirþyngd til þess að þramma og trampa um gólf leikhússins, undir því yfirskyni að um væri að ræða ballett, yrði mér gert að taka pokann minn umsvifalaust. Ballettdans á að vera fisléttur og leikandi. Ef ég ætti leikhúsið einn, gæti ég jú gert nokkurn veginn það sem mér sýndist hverju sinni, en á endanum yrði ég að taka tillit til vilja fólksins – samfélagsins – ef ég ætlaði ekki að valda leikhúsinu alvarlegu tjóni. Tómt leikhús er ekki mikils virði. Fyrir hvern er hið nýja íslenska raforkuflutningskerfi byggt? Á skjön við umræðu um umhverfismál Þessi sótsvörtu kolefnisspor ballerínanna þungstígu eru algjörlega á skjön við umræðu um umhverfismál, algjörlega á skjön við niðurstöður umhverfisráðstefnunnar COP21 í París og í svo gott sem fullkomnu ósamræmi við kröfur íslensks almennings um hagkvæmni í fjárfestingum. Er þetta yfirhöfuð í samræmi við raforkulög? Hvernig? Þá er nafngiftin „Ballerína“ athyglisverð, enda flestum sem með þessum málum fylgjast kunnugt um íslenska nýsköpunarfyrirtækið Línudans ehf. (www.facebook.com/greengrids). Línudans hefur frá árinu 2008 unnið að þróun fisléttra umhverfisvænna háspennumastra sem eru á sama tíma mjög hagkvæmur valkostur fyrir raforkuflutning á hárri spennu. Sú staðreynd að Landsnet stígi nú fram með svokallaða nýja kynslóð háspennumastra sem einnig fær skírskotun í dans, líkt og Línudans hefur gert í sínum verkefnum frá upphafi – ekki síst til markaðssetningar og áherslu þeirrar nýju hugmyndafræði sem fyrirtækið stendur fyrir – er ekki bara illa gert heldur endurspeglar mikla og átakanlega fátækt hlutaðeigandi. Við vitum að það er ekki fallegt að gera hugmyndir og hugmyndafræði annarra að sínum, siðferðislega rangt og óheiðarlegt. Öllu verra er ef hin nýja kynslóð háspennumastra reynist bæði menga meira en áður hefur sést á þessu sviði auk þess að vera einhver dýrasta mastralausn sem komið hefur fram á sjónarsviðið á Íslandi. Það er alls ekki gott fyrir hækkandi hitastig á jörðinni og síður en svo gott fyrir íslenskan efnahag. Hver er ballettstjóri? Af tillitssemi við íslenska skattgreiðendur og þá fjölmörgu aðila sem fjárfest hafa tíma og fjármagni í verkefnum Línudans ehf., íslenska ríkið þar með talið, þá er rétt að óska eftir skýringum á þessari niðurstöðu margra ára rannsóknar og þróunarvinnu Landsnets sem kostað var til með fjármunum Íslendinga. Hve miklu hefur verið varið í þetta verk sem forstjórinn sjálfur Guðmundur Ingi Ásmundsson kynnti fyrir okkur á haustdögum? Fyrir hönd íslenskrar náttúru og umhverfisþenkjandi fólks; hve margar þúsundir tonna CO2 verða skildar eftir í umhverfinu. Óskað er eftir skýrum tölulegum upplýsingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Rannver Rafnsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar