Durant og Westbrook fóru á kostum er OKC sendi San Antonio í sumarfrí Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. maí 2016 07:15
Oklahoma City Thunder komst í nótt í úrslitaeinvígi vesturdeildar NBA þegar liðið lagði San Antonio Spurs, 113-99, í sjötta leik liðanna í undanúrslitum. OKC vann einvígið í sex leikjum, 4-2. Eftir að tapa illa, 124-92, í fyrsta leiknum settu leikmenn OKC sig í gírinn og unnu fjóra af næstu fimm leikunum í einvíginu. Þar af unnu þeir tvo leiki í San Antonio þar sem Spurs tapaði aðeins einum leik í allri deildarkeppninni. Spurs var lang næstbesta liðið í deildarkeppninni í vetur en það vann 67 leiki af 82, aðeins sex færri en Golden State Warriors sem bætti 20 ára gamalt met Chicago Bulls með 73 sigurleikjum. Bjuggust flestir við rimmu þessara liða í úrslitum vestursins. Kevin Durant og Russell Westbrook voru báðir frábærir í liði OKC. Durant skoraði 37 stig og tók níu fráköst en Westbrook skoraði 28 stig og gaf tólf stoðsendingar. Steven Adams bætti við 15 stigum og ellefu fráköstum og Andre Robertsson skilaði sínu með 14 stigum og sjö fráköstum. Kawhi Leonard var stigahæstur Spurs með 22 stig auk þess sem hann tók níu fráköst og LaMarcus Aldridge skoraði 18 stig og tók fjórtán fráköst. Gamli maðurinn Tum Duncan skoraði 19 stig í því sem gæti verið síðasti leikur hans á ferlinum. Oklahoma City Thunder mætir Golden State Warriors í úrslitaeinvígi vestursins þar sem fyrsti leikurinn fer fram aðfaranótt fimmtudags.
NBA Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira