Skemmtileg stuttmynd um leik tvö í úrslitunum NBA | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2016 19:45 Stephen Curry skorar yfir LeBron James í síðasta leik. Vísir/Getty
Golden State Warriors er komið í 2-0 í lokaúrslitunum á móti Cleveland Cavaliers en hvernig fóru NBA-meistararnir að því að vinna leik tvö? NBA-deildin hefur tekið saman skemmtilegt myndband frá leik tvö þar sem hægt að er sjá leikinn frá öllum sjónarhólum, hvort sem er um að ræða stuðningsmenn liðanna fyrir utan höllina, áhorfendur inn í höllinni, sjónvarpsmenn ESPN eða leikmenn liðanna tveggja. Myndbandið rekur alla sögu leiksins, frá því að leikmenn liðanna mæta til leiks í Oracle-höllina í Oakland og eru kynntir til leiks en þaðan er síðan farið í gegnum leikinn og endað á því að sýna viðbrögð manna eftir leikinn. Það er skemmtilegt hvernig er klippt á milli þess sem lýsendur leiksins voru að segja og það sem leikmennirnir sjálfir voru að segja sín á milli þegar stærstu atburðir leiksins gerðust og hvaða skilaboð þjálfararnir voru að koma áleiðis til sinna manna þegar liðin þurftu að svara góðum spretti mótherjanna. Meðal þessa er þegar Cleveland komst sex stigum yfir og hvernig Golden State svaraði því sannkölluðum meistaratöktum sem skiluðu liðinu átján stiga sveiflu og fínu forskoti fyrir hálfleik. Draymond Green átti frábært kvöld í liði Golden State Warriors með 28 stig og Stephen Curry bætti við 18 stigum. Það dugði ekki Cleveland Cavaliers LeBron James var með 19 stig. 8 fráköst og 9 stoðsendingar. Cleveland Cavaliers fær næstu tvo leiki á heimavelli sínum og ætti þar að geta sýnt mun betri frammistöðu þar enda hafa LeBron James og félagar enn ekki tapað á heimavelli sínum í þessari úrslitakeppni. Það er hægt að sjá þetta vel heppnaða myndband frá NBA-deildinni hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Sjá meira