
Rödd Norðurlanda þarf að heyrast
Umfjöllunarefnum G20-ríkjanna hefur einnig fjölgað, frá því að vera fyrst og fremst málefni af fjármálalegum toga til þess að taka til að mynda á niðurgreiðslum til jarðefnaeldsneytis og fjalla um atvinnumál, en atvinnumál verða einmitt umfjöllunarefni atvinnumálaráðherra G20-ríkjanna á fundi þeirra í Peking (11. til 13. júlí). Þar verða fulltrúar Norðurlanda fjarri góðu gamni.
Norðurlönd hafa hins vegar allar forsendur til þess að leita eftir auknu samstarfi við G20. Þrátt fyrir að vera ekki margmenn – tæplega 26 milljónir íbúa – eru Norðurlönd til samans tólfta stærsta hagkerfi heimsins. Fyrir utan virka þátttöku í alþjóðasamstarfi, þar sem litið er á Norðulönd sem samstíga ríki sem oft hugsa eins, vilja það sama og greiða atkvæði með svipuðum hætti, þá búum við að sterku sameiginlegu milliríkjasamstarfi í gegnum Norrænu ráðherranefndina.
Á sama tíma má halda því fram að norræna módelið sé í tísku, það sýndi sig síðast í vorheimsókn forsætis- og utanríkisráðherra Norðurlanda til Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Staðreyndin er að ríkjum Norðurlanda er oft á alþjóðavettvangi lýst sem mjög samkeppnishæfum, árangursríkum og til eftirbreytni. Þar ríki röð og regla í fjármálum, ásamt blöndu af hagvexti, samkeppnishæfni og félagslegu öryggi. Þetta vekur forvitni annarra – líka þeirra í Hvíta húsinu.
Utanríkisviðskipti gegna mikilvægu hlutverki í hnattvæddum heimi, einkum fyrir lítil og opin hagkerfi. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur Norðurlandabúa. Við höfum sýnt og sannað að það er ekki aðeins unnt að sameina með árangursríkum hætti hagvöxt og samkeppnishæfni með alhliða velferðarsamfélagi og efnahagslegu jafnrétti, það er einnig æskilegt. Norræna líkanið hefur vakið athygli og aðdáun, meðal annars hjá OECD og World Economic Forum, fyrir að vera sveigjanlegt samfélagslíkan sem hefur betri forsendur til að takast á við kreppur og áföll en mörg önnur samfélagslíkön.
Uppsprettu þessa sveigjanleika er að finna í hinni skipulögðu starfsemi verkalýðshreyfingarinnar, sem er vægast sagt mikilvægt púsl í hinu norrænu líkani. Á meðal óteljandi lista þar sem Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð eru í efstu sætum – t.d. þegar kemur að jafnrétti, bjartsýni og hamingju – er einn listi þar sem Norðurlönd skína eins og einmana stjarna á himinfestingunni og önnur lönd þurfa að líta til og fylgja. Í hinum frjálsa heimi erum við með langhæstu þátttöku vinnandi fólks í stéttarfélögum. Innan raða norrænu regnhlífarsamtanna okkar, Nordens Fackliga Samorganisation (NFS) eru ríflega níu milljónir meðlima. Tveir af hverjum þremur launamönnum eru meðlimir í einhverju hinna 400 félaga sem finnast innan samtaka launafólks, samtaka opinberra starfsmanna og háskólafólks á Norðurlöndum. Belgar eru eina þjóðin með viðlíka þátttöku, þar er annar hver launamaður skráður í stéttarfélag. Það er sorgleg staðreynd að önnur lönd OECD eru langt undan í þessum samanburði.
Það má því segja að verkalýðshreyfingin varði almannaheill á Norðurlöndum. Ábyrgðarkrafan er rík, jafnt hjá okkur sem hjá viðsemjendum okkar. Hryggjarstykkið í norræna líkaninu og í hinni skipulögðu verkalýðshreyfingu er nefnilega samstarf á jafnræðisgrundvelli á milli sterkra sjálfstæðra aðila og samningaviðræður sem byggja á trausti, ábyrgð og raunsæi.
Mikil þátttaka í verkalýðsfélögum hefur leitt til þess að vinnumarkaðslöggjöfin er ekki tiltakanlega umfangsmikil. Þess í stað er atvinnulífið stillt af í gegnum kjarasamninga og samkomulög sem innihalda allt frá launum og starfsþjálfun til endurhæfingar og eftirlauna. Gildistími samninga er mislangur en það er ófrávíkjanleg regla að á samningstímabilinu ríkir friður. Líkanið veitir atvinnuveitendum samningsrými og sveigjanleika en leggur líka grunninn að sjálfbærum og fyrirsjáanlegum vinnumarkaði þar sem atvinnuöryggi, samningsbundin laun og mannsæmandi vinnuaðstæður eru tryggð.
Það sem skilur norræna líkanið, með sinni „léttu“ vinnulöggjöf og einföldu leikreglum, frá samfélagkerfum þar sem byggt er á þungri lagasetningu, er að norræn hagkerfi og norrænn vinnumarkaður eru sveigjanleg og auðstýranleg. Skipuleg launaþróun – sem stuðlar að aukinni framleiðni og auðveldar endurskipulagningu og breytingar – eykur getu ríkja okkar til að takast á við fjármálakreppur og kröfur um aukna samkeppnishæfni vegna alþjóðlegs þrýstings. Þetta er ein helsta ástæða þess að norrænum samfélögum auðnaðist að takast á við fjármálakreppuna með þeim hætti að eftir var tekið á alþjóðavettvangi og styrkti enn frekar jákvæðan orðstír Norðurlanda.
Norræna líkanið er hins vegar ekki einungis til þess hannað að geta bara brugðist við samkeppni utan frá. Það er líka drifkrafturinn sem rekur samkeppnishæf Norðurlönd fram á við. Gott velferðarkerfi, almennt hátt menntunarstig, sanngjörn laun fyrir sómasamlega vinnu og gott sumarleyfi stuðla að kynjajafnrétti, almennu jafnrétti, hamingju og bjartsýni borgaranna. Þetta leggur grunninn að skapandi og afkastamiklu starfsfólki; því sama starfsfólki sem á endanum skapar samkeppnishæf fyrirtæki – og já, við erum líka á toppnum á þessum listum. Það var e.t.v. þess vegna sem Spotify tilkynnti í fyrra að allir starfsmenn fyrirtækisins, hvar sem er í heiminum, skyldu hafa rétt á a.m.k. sex mánaða fæðingarorlofi? Það er langt síðan launafólk á Norðurlöndum öðlaðist þessi forréttindi og við í verkalýðshreyfingunni gleðjumst því yfir því að atvinnulífið sýnir viðleitni til þess að flytja út, ekki bara tónlist, heldur líka hluta af hinu norræna líkani.
Við, fulltrúar norrænu verkalýðshreyfingarinnar, erum þó þeirrar skoðunar, að ef norræna líkanið á að geta orðið fyrirmynd annarra, þá getum við ekki lengur sætt okkur við að sitja á hliðarlínunni, vekja forvitni eða flytja út valda hluta líkansins. Við þurfum að vera til staðar í Peking og á komandi fundum G20-ríkjanna, í þeim tilgangi að geta þegar á frumstigi haft áhrif á mikilvægar alþjóðlegar ákvarðanir með þeim hætti að gildum okkar verði miðlað til umheimsins í gegnum sjálfbæran og sanngjarnar vinnumarkað án aðgreiningar. Þetta er kjarninn í norræna líkaninu og þetta gerir það að verkum að Norðurlönd eru mikilvæg rödd í G20.
Við skorum því á ríkisstjórnir Norðurlanda og Norrænu ráðherranefndina að leita þegar eftir áhrifum í G20. Heimurinn þarf á okkur að halda og við þurfum á heiminum að halda.
Gylfi Arnbjörnsson
forseti ASÍ
Elín Björg Jónsdóttir
formaður BSRB
Magnus Gissler
framkvæmdastjóri NFS
Skoðun

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar