Hundurinn borðaði heimavinnuna og fór rakleiðis í ljós Tinni Sveinsson skrifar 29. ágúst 2016 13:00
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur nú áfram á annarri keppnisviku. Óli Bjarki Austfjörð og Júlíus Óli Stefánsson mættust á föstudag á fimmta keppnisdegi fyrir hönd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Menntaskólans í Kópavogi. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan. Óli Bjarki lætur ljós sitt skína í stærðfræðitíma en Júlíus Óli lætur ljósið skína á sig á sólbaðsstofu. Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. Atkvæðagreiðsla fyrir fjórða keppnisdag kláraðist á föstudag en þar mættust Brynjar Steinn úr Menntaskólanum á Akureyri og Ísabella Ýrr úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla. Brynjar Steinn sigraði það einvígi fyrir hönd MA og mun því halda áfram í næstu umferð.Brynjar Steinn vann fyrir hönd MA.Fjölbrautarskólinn í Breiðholti og Menntaskólinn við Sund mætast í dag, á sjötta keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á morgun. Keppnin heldur áfram næstu vikurnar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála. Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning. Dagskrá keppninnar:22. ágúst Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)23. ágúst Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)24. ágúst Framhaldsskólinn á Húsavík (sigurvegari) vs. Tækniskólinn25. ágúst Menntaskólinn á Akureyri (sigurvegari) vs. Fjölbraut við Ármúla26. ágúst Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi29. ágúst Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund30. ágúst Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands31. ágúst Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ1. september Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri2. september Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. FlensborgarskólinnSigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.
So You Think You Can Snap! Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira