Breki hinn einhenti rústaði andstæðingnum og nektin allsráðandi á Akureyri Stefán Árni Pálsson skrifar 2. september 2016 11:30
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur nú áfram á annarri keppnisviku. Snorri Másson fyrir MR og Albert Jóhannsson fyrir VMA mættust í gær á níunda keppnisdegi. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan. Hjá MR var busadagur og því eðlilega mikið um að vera í skólanum en á Akureyri hrækti Albert framan í vin sinn og voru menn mikið að vinna með nektina fyrir norðan. Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar. Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. Atkvæðagreiðsla fyrir áttunda keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Lena Huld, Fjölbrautaskóla Snæfellinga, og Starkaður Pétursson, FG. Starkaður hafði betur og mun halda áfram í næstu umferð.Starkaður vann keppnina í gær.Fjölbrautaskóli Suðurlands og Flensborg mættast í dag á tíunda keppnisdegi og verður greint frá því á mánudaginn, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Keppnin heldur áfram næstu vikurnar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála. Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.Dagskrá keppninnar:22. ágúst Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)23. ágúst Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)24. ágúst Framhaldsskólinn á Húsavík (sigurvegari) vs. Tækniskólinn25. ágúst Menntaskólinn á Akureyri (sigurvegari) vs. Fjölbraut við Ármúla26. ágúst Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi (sigurvegari)29. ágúst Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund (sigurvegari)30. ágúst Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands (sigurvegari)31. ágúst Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ (sigurvegari)1. september Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri2. september Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. FlensborgarskólinnSigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.
So You Think You Can Snap! Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira