Sjóðheitur Elías Már skoraði sigurmark Gautaborgar Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. október 2016 19:12 Elías Már Ómarsson skorar og skorar í Svíþjóð. mynd/ifk
Elías Már Ómarsson var hetja IFK Gautaborgar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á AIK á heimavelli. Elías Már skoraði markið á 26. mínútu eftir sendingu frá Emil Salomonssyni. Haukur Heiðar Hauksson var ekki með AIK í leiknum. Markið heldur Evrópudraumum Gautaborgarliðsins á lífi en það er samt sem áður sjö stigum frá AIK í fjórða sæti deildarinnar með 46 stig. Þrír leikir eru eftir. Elías Már er búinn að fara á kostum síðan hann kom á láni til Gautaborgar frá Vålerenga í Noregi. Þetta var fimmta markið hans í síðustu tíu leikjum en í síðustu umferð lagði hann upp eitt mark í 3-3 jafntefli gegn Gefle. Í Danmörku var Guðlaugur Victor Pálsson á miðjunni hjá Esbjerg sem tapaði, 3-1, fyrir Midtjylland. Staðan var 1-1 fram á 62. mínútu en þá skoruðu gestirnir tvisvar sinnum á tveimur mínútum og tryggðu sér sigurinn. Victor og félagar eru í neðsta sæti deildarinnar með átta stig en þeir eru aðeins búnir að vinna einn leik af fjórtán.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira