„Sko, fyrst það að segja að kosningarnar skiluðu þessum niðurstöðum og svo eru yfirlýsingar formanna fyrir og eftir kosningar sem hafa þrengt stöðuna,“ segir Sigurður Ingi í samtali við Vísi og þá almennt um stöðuna í stjórnarviðræðunum.
Vilji til að sitja í næstu stjórn
Eins og kunnugt er heldur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, nú um hið svokallaða stjórnarmyndunarumboð. Mörgum þykir hann fara sér hægt, tæp vika er síðan kosningar voru og Bjarni hefur sagt að hann hafi enn ekki kallað neinn til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna.
![](https://www.visir.is/i/70525209D2B1CABFE9B0C5D53D8E1C82F6F93E7638DC1F2C6BBC4664C0CB5192_713x0.jpg)
„Við erum vön að sitja í ríkisstjórn, höfum reynslu til þess og erum tilbúin í viðræður. Og ég sé stöðu okkar í því ljósi.“
En, hverjar metur hann líkur á því að Framsóknarflokkurinn fari í stjórn?
„Ég skal ekkert segja um það. Það er ákveðin pattstaða uppi. En við erum hins vegar flokkur sem getur starfað með mörgum og erum tilbúin til þess,“ segir Sigurður Ingi.
Öfugt við ýmsa aðra stjórnmálaleiðtoga hefur Sigurður Ingi verið afar varkár í yfirlýsingum um ákjósanlega samstarfsmenn í ríkisstjórn. Hann hefur í sjálfu sér ekki þrengt stöðu flokksins og hann vísar til reynslunnar í þeim efnum.
„Flokkur verður ekki hundrað ára af sjálfum sér,“ segir Sigurður Ingi og kímir.
Algerlega ótímabært að ræða hugsanlegan ráðherradóm Sigmundar Davíðs
Þessu tengt þá gat að líta í Morgunblaðinu nú í vikunni afdráttaryfirlýsingar Sveins Hjartar Guðfinnssonar, sem er formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, þar sem hann sagði flokkinn klofinn og það sem meira er; stuðningsmenn Sigmundar Davíðs væru hreinlega beittir skoðanakúgun innan flokks. Hvernig horfir þetta við Sigurði Inga?
„Sko, það er auðvitað svo að eftir að menn hafa tekist á um fólk, því við höfum ekki verið að takast á um málefni, er ekkert skrítið að það taki ákveðinn tíma að öll sár grói. Það er auðvitað engin skoðanakúgun innan Framsóknarflokksins hefur aldrei verið og flokksþingið var kannski besta dæmið um það.“
![](https://www.visir.is/i/F982BBF26D9A2F858D0DF970EA7599B287DFBBEA4567326926F8DC4FF062AA0D_713x0.jpg)
„Það er algerlega ótímabært að ræða það. Ef ég vísa til umræðunnar eins og hún hefur verið í fjölmiðlum, um hvernig slík stjórn gæti orðið, þá hefur Framsóknarflokkurinn ekki verið þar ofarlega á blaði. Þannig að það er ótímabært að ræða það.“
Stjórnarmyndun gengið hratt fyrir sig undanfarin aldarfjórðung
Sigurður Ingi virðist vera býsna rólegur gagnvart myndun nýrrar stjórnar þó það liggi fyrir af hans hálfu vilji til að eiga aðild að nýrri stjórn. Almennt segir hann að allir stjórnmálaflokkar verði að velta fyrir sér, á þessum tímapunkti eftir kosningar, því að þeir skuldi almenningi það að setjast niður með ábyrgum hætti. „Það þarf að vera starfhæf ríkisstjórn í landinu og það er okkar verkefni að finna út úr því.“
Sigurður Ingi bendir á að í raun sé ekki langur tími liðinn frá kosningum. Ekki í sjálfu sér. „Við höfum, síðustu 25 ár, séð þetta gerast tiltölulega hratt. En ef við skoðum söguna lengra aftur, og hvað þá ef borið er saman við önnur lönd, þá er engin tími liðinn. Ég held að það sé eðlilegt að þetta taki tíma.“
En, sé litið til undanfarinna tveggja áratuga eða svo, þá er ljóst að þetta er meiri pattstaða en áður hefur sést?
„Klárlega.“