LeBron og Russell bestir í fyrstu viku NBA | Sjáið flottustu tilfþrif vikunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2016 11:30 LeBron James og Russell Westbrook. Vísir/Getty
LeBron James hjá Cleveland Cavaliers og Russell Westbrook hjá Oklahoma City Thunder voru valdir bestu leikmennirnir í NBA-deildinni í körfubolta í fyrstu vikunni á nýju tímabili. James var bestur í Austurdeildinni en Westbrook bestur í Vesturdeildinni. LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers unnu alla þrjá leiki sína í vikunni og hann var með 21,0 stig, 10,0 stoðsendingar og 8,3 fráköst að meðaltali í leik. James var með þrennu í fyrsta leik en hann skoraði 19 stig, tók 11 fráköst og gaf 14 stoðsendingar í sigri á New York Knicks í opnunarleiknum. Russell Westbrook fór á kostum með Oklahoma City Thunder sem vann þrjá fyrstu deildarleiki sína eftir brotthvarf Kevin Durant. Westbrook var með þrennu í tveimur af þessum þremur leikjum sem og þrennu að meðaltali í leik. Meðaltöl Westbrook voru 38,7 stig, 11,7 stoðsendingar og 12,3 fráköst. Hann átti sinn besta leik í sigri á Phoenix Suns þar sem hann var með 51 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar en þetta var fyrsta þrennan með 50 stigum síðan að Kareem Abdul-Jabbar afrekaði það 1975. Russell Westbrook er þegar byrjaður að skrifa sögubókina á þessu tímabili en þar til núna hafði enginn NBA-leikmaður náð að vera með meira en 100 stig, 30 fráköst og 30 stoðsendingar í fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Aðrir sem komu til greina voru Paul Millsap hjá Atlanta, Avery Bradley hjá Boston, Kyrie Irving hjá Cleveland, Andre Drummond hjá Detroit, Kevin Durant hjá Golden State, Anthony Davis hjá New Orleans, Damian Lillard hjá Portland, Kawhi Leonard hjá San Antonio og Toronto-leikmennirnir DeMar DeRozan og Jonas Valanciunas.Hér fyrir neðan má síðan flottustu tilþrif vikunnar í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Fleiri fréttir Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Sjá meira