Katrín Jakobsdóttir boðuð á fund á Bessastöðum á morgun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. nóvember 2016 18:44 Katrín Jakobsdóttir mun funda með forseta Íslands á morgun. vísir
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur boðað Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, á fund sinn á Bessastöðum klukkan 13 á morgun. Gera má ráð fyrir að þau muni ræða það að Katrín taki við stjórnarmyndunarumboðinu, eftir að viðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sigldu í strand í dag. Katrín sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hún sjálf vilji mynda fjölflokka stjórn frá miðju til vinstri. „Það er sá valkostur sem við höfum haldið á lofti,“ sagði Katrín. Þá sagði hún stöðuna flókna og því sé það ekki öfundsvert að reyna að mynda ríkisstjórn. „Staðan er flókin og það ber heilmikið í milli á milli þessara flokka.“Uppfært 19:10:Skrifstofa forseta Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson átti síðdegis fund með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins sem farið hefur með stjórnarmyndunarumboð. Eftir þann fund ræddi forseti við forystufólk allra þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Forseti hefur í kjölfarið boðað Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, til fundar við sig á Bessastöðum kl. 13:00 á morgun, miðvikudaginn 16. nóvember 2016.“
Kosningar 2016 Mest lesið Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Innlent Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Erlent Búvörulögin dæmd ólögmæt Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Innlent Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Innlent Tóku skref í rétta átt um helgina Innlent Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Innlent Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Innlent Fleiri fréttir Fuglaflensa greindist í mávi við Reykjavíkurtjörn Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Búvörulögin dæmd ólögmæt Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Tóku skref í rétta átt um helgina Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastalund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastalund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Sjá meira