Íslenskur landnámshöfðingi reisti stærsta víkingaskálann Kristján Már Unnarsson skrifar 14. nóvember 2016 18:47
Stærsti víkingaskáli sem fundist hefur á Norðurlöndum er nú talinn hafa verið reistur af einum af landnámsmönnum Íslands, Ólafi tvennumbrúna, sem fram á síðustu ár hefur verið lítt þekktur. Þessi nýlega uppgötvun veldur því að Ólafur er orðinn stærsta nafnið í víkingatengdri ferðaþjónustu í Norður-Noregi. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum Landnemarnir. Á bænum Borg á Lófóten í Norður-Noregi er búið að endurreisa höfðingjasetur í þeirri mynd sem fornleifarannsóknir sýna að þar stóð um það leyti sem Ísland byggðist. Þær rannsóknir þykja styðja frásagnir Íslendingasagna um að efnaðir höfðingjar hafi verið í hópi landnámsmanna en skálinn var 83 metra langur. Þegar sagnfræðingar báru saman fornar ritheimildir og aldursgreiningar varð niðurstaðan sú að líklegast hefði Ólafur tvennumbrúni, sá sem nam Skeið, reist skálann.Alf Ragnar Nielsen, prófessor í Bodø við háskólann í Nordland.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.„Þetta er stærsta hús frá víkingatímanum sem fundist hefur á gervöllum Norðurlöndum. En hann fór héðan og sigldi til Íslands í kringum árið 900 eða aðeins fyrr,“ segir Norðmaðurinn Alf Ragnar Nielssen, prófessor í sagnfræði. Norðmenn eru þarna búnir að byggja upp ferðaþjónustu, með sýningum, söngleikjum og siglingum víkingaskipa, allt í nafni Ólafs tvennumbrúna. „Hann fór af Lófót til Íslands; hann nam Skeið öll milli Þjórsár og Hvítár og til Sandlækjar; hann var hamrammur mjög," segir Landnámabók. Ólafur bjó að Ólafsvöllum á Skeiðum og þar segir Georg Kjartansson bóndi okkur að þeim hafi komið á óvart hversu Norðmenn gerðu mikið með Ólaf tvennumbrúna í Noregi.Georg Kjartansson, bóndi á Ólafsvöllum á Skeiðum.Stöð 2/Björn Sigurðsson.„Það koma hingað oft rútur og einstaklingar sem vilja fá að kíkja. Og ég hef líka hitt hann hér á hlaðinu í víkingaklæðum, óvopnaðan,“ segir bóndinn á Ólafsvöllum. Nánar er fjallað um Ólaf tvennumbrúna í þættinum Landnemarnir á Stöð 2 í kvöld, klukkan 19.55, í opinni dagskrá. Þar verður einnig fjallað um fleiri landsnámshöfðingja, eins og Ingimund gamla, Helga magra, Þórunni hyrnu og Hrollaug Rögnvaldsson.Víkingurinn Ólafur tvennumbrúni kvikmyndaður í skipi sínu á Lófóten fyrir Landnemana á Stöð 2.Stöð2/Kristján Már Unnarsson.
Fornminjar Landnemarnir Noregur Tengdar fréttir Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15 Þuríði sundafylli hampað í sjávarbyggðum Lofoten Minnisvarði er um landnámskonuna Þuríði sundafylli við ráðhús stærsta sveitarfélagsins á Lofoten. 21. mars 2016 20:00 Geirmundur heljarskinn sagður mongólskur og hörundsdökkur Sá sem sagður var göfgastur allra landnámsmanna Íslands er á norsku sögusafni sýndur mongólskur útlits og mjög hörundsdökkur. 14. mars 2016 18:45 Telja Auði djúpúðgu ættaða frá Kvam við Aurlandsfjörð Þess vegna hafi hún valið sama heiti á landnámsbæ sinn á Íslandi. 8. febrúar 2016 19:15 Maður Auðar var konungur og þrælakaupmaður Auður djúpúðga er frægasta landnámskona Íslands. 5. febrúar 2016 14:59 Norðmenn segja Ingólf úr Hrífudal Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, kom frá Dalsfirði á Fjölum, samkvæmt Landnámabók. 29. janúar 2016 15:00 Egill Skallagrímsson listaskáld en einnig illræmdur morðingi Saga Skallagríms Kveldúlfssonar, landnámsmanns Borgarfjarðar, og sonar hans, Egils Skallagrímssonar, er einhver magnaðasta frásögn Íslendingasagna. 6. mars 2016 18:30 Kverkarhellir gæti breytt tímasetningu landnámsins Gæti jafnframt orðið fyrsta sönnunin fyrir veru papa á Íslandi. 25. janúar 2016 18:00 Sigldu konur með pöpum til Íslands? Paparnir eru ein af ráðgátum Íslandssögunnar. 22. janúar 2016 13:30 Telur vörðuna Illþurrku vera hringgröf úr heiðni Þetta gætu verið einhverjar elstu fornminjar á Íslandi ef rétt reynist að þarna liggi eiginkona Geirmundar heljarskinns. 17. mars 2016 20:30 Þuríður sundafyllir dæmi um samískar rætur Íslendinga? Þuríður sundafyllir er ein fárra landnámskvenna sem getið er um fornsögunum. Vísbendingar eru um að hún gæti hafa verið Sami. 20. mars 2016 09:45 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Sjá meira
Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15
Þuríði sundafylli hampað í sjávarbyggðum Lofoten Minnisvarði er um landnámskonuna Þuríði sundafylli við ráðhús stærsta sveitarfélagsins á Lofoten. 21. mars 2016 20:00
Geirmundur heljarskinn sagður mongólskur og hörundsdökkur Sá sem sagður var göfgastur allra landnámsmanna Íslands er á norsku sögusafni sýndur mongólskur útlits og mjög hörundsdökkur. 14. mars 2016 18:45
Telja Auði djúpúðgu ættaða frá Kvam við Aurlandsfjörð Þess vegna hafi hún valið sama heiti á landnámsbæ sinn á Íslandi. 8. febrúar 2016 19:15
Maður Auðar var konungur og þrælakaupmaður Auður djúpúðga er frægasta landnámskona Íslands. 5. febrúar 2016 14:59
Norðmenn segja Ingólf úr Hrífudal Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, kom frá Dalsfirði á Fjölum, samkvæmt Landnámabók. 29. janúar 2016 15:00
Egill Skallagrímsson listaskáld en einnig illræmdur morðingi Saga Skallagríms Kveldúlfssonar, landnámsmanns Borgarfjarðar, og sonar hans, Egils Skallagrímssonar, er einhver magnaðasta frásögn Íslendingasagna. 6. mars 2016 18:30
Kverkarhellir gæti breytt tímasetningu landnámsins Gæti jafnframt orðið fyrsta sönnunin fyrir veru papa á Íslandi. 25. janúar 2016 18:00
Sigldu konur með pöpum til Íslands? Paparnir eru ein af ráðgátum Íslandssögunnar. 22. janúar 2016 13:30
Telur vörðuna Illþurrku vera hringgröf úr heiðni Þetta gætu verið einhverjar elstu fornminjar á Íslandi ef rétt reynist að þarna liggi eiginkona Geirmundar heljarskinns. 17. mars 2016 20:30
Þuríður sundafyllir dæmi um samískar rætur Íslendinga? Þuríður sundafyllir er ein fárra landnámskvenna sem getið er um fornsögunum. Vísbendingar eru um að hún gæti hafa verið Sami. 20. mars 2016 09:45