Noregur

Noregur

Höfuðborg: Ósló. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 385.207 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Notuðu Sturlu í leyfis­leysi til að aug­lýsa pararáðgjöf

Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rúss­nesk skemmdar­verk, inn­viðir og Ís­land

Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. 

Skoðun
Fréttamynd

Veiktist er hann reyndi að af­sanna Havana-heilkennið

Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.

Erlent
Fréttamynd

Sturla bað allt liðið af­sökunar í kvöld­verði

Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu.

Sport
Fréttamynd

Jagland sviptur frið­helgi

Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Norð­menn geti ekki úti­lokað inn­rás Rússa

Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga.

Erlent
Fréttamynd

Vill verða Bond ill­menni

Norski fyrrum fótboltamaðurinn John Carew á sér stóra drauma innan leiklistarinnar. Hann lærði iðjuna í leyni meðan hann var leikmaður Aston Villa á Englandi og hefur getið sér gott orð að undanförnu.

Fótbolti
Fréttamynd

Á­hrifa­miklir norskir erind­rekar rann­sakaðir vegna Epsteins

Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Í kapp­hlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar

„Ég vil sjá börnin mín vaxa úr grasi. Mig langar að verða amma. Ég er ekki reiðubúin til að deyja,“ segir Ingibjörg Gísladóttir Lauvland með kökk í hálsinum í samtali við norska ljósmyndarann Olav Svaland. Ingibjörg er Íslendingur búsett í Noregi en fyrir tveimur árum greindist hún með ALS, líkt og faðir hennar á undan og fleiri skyldmenni. Pabbi hennar býr á Íslandi og hefur náð nokkrum bata með lyfjagjöf. Ingibjörg fær ekki lyfið; norska ríkið segir nei.

Innlent
Fréttamynd

Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum

„Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot.

Erlent
Fréttamynd

Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“

Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, sagðist fyrir rétti í Osló í gær ekki muna eftir að hafa tekið myndir og myndbönd sem eru meðal gagna málsins gegn honum. Myndefnið fannst í síma Høiby sjálfs, og tengist meintu broti hans gegn konu morguninn eftir partý í Skaugum árið 2018. Høiby brast í grát í dómsal í gær og kvartaði sáran yfir veru fjölmiðla í salnum og umfjöllunar þeirra um hans mál. Það hafi reynst honum erfitt að vera þekktur fyrir að vera sonur móður sinnar.

Erlent
Fréttamynd

Játaði nokkrum á­kæru­liðum en neitaði nauðgununum

Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, játaði fyrir dómi í gær að hafa rofið skilorð, að hafa brotið gegn fíkniefnalöggjöfinni og ýmis umferðarbrot. Hann neitaði hins vegar sök í fjórum ákæruliðum er vörðuðu nauðgun, brot í nánu sambandi og að hafa myndað kynfæri kvenna án vitundar þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslis­mála

Sonur norsku krónprinsessunnar neitaði fyrir dómi í dag að hafa framið alvarlegustu ofbeldisbrotin sem hann er ákærður fyrir, eins og nauðgun og líkamsárás. Sérfræðingur um konungleg málefni segir málið allt það alvarlegt að krúnan sjálf gæti verið í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Á­kærður í 38 liðum og löng bið­röð fyrir utan réttinn í Osló

Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga.

Erlent
Fréttamynd

Segir von­brigðin með prinsessuna rista djúpt

Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi.

Erlent
Fréttamynd

Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur hand­tekinn í gær

Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag norska stjúpprinsinn Marius Borg Høiby, son norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, í gæsluvarðhald til 2. mars. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Høiby, sem var handtekinn aftur í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Þar að auki hefjast réttarhöld yfir Høiby á morgun vegna fjölda annarra mála, en hann sætir ákæru vegna 38 meintra brota á lögum, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi, nauðgun og fleiri ofbeldisbrot.

Erlent