Á vefsíðunni emmsje.is má finna tölvuleikinn og er þar bregður leikmaðurinn sér í hlutverk Gauta og markmiðið er að aðstoða hann við að komast á skemmtistaðinn Prikið þar sem hann á að halda tónleika.
En hans bíða ýmsar hindranir á leiðinni – til að mynda er drukkinn lýðurinn sífellt að stoppa Gauta af og draga hann á trúnó, en það er mjög mikilvægt annaðhvort að stökkva yfir þessa erfiðu djammara eða hreinlega stökkva ofan á þá og losna þar með við þá út úr myndinni. Gauti villist meðal annars inn á B5 en þar þarf hann að passa sig á flöskuborðum og laganemum og lendir í ýmsum öðrum hremmingum.

Hvernig kom til að þú ákvaðst að gera tölvuleik?
„Í raun og veru er þetta snjóbolti sem hefur stækkað og stækkað síðustu vikurnar. Í september tek ég þá ákvörðun að gefa út nýja plötu hjá útgáfufyrirtæki Priksins sem heitir Sticky plötuútgáfa. Geoffrey Skywalker kom með þá hugmynd að fá „Viktors Vintage“ sem sérhæfir sig í að gera retró-dótakalla til að gera eitt stykki Emmsjé Gautafígúru. Eftir það var tekin sú ákvörðun að vinna allt myndefni í þeim stíl sem kallinn er í.

Ég hafði samband við hann og við skutum á milli okkar hugmyndum sem endaði með því að við ákváðum að gera tölvuleik saman.
Þegar leið á ferlið ákváðum við að fara alla leið og fengum með okkur í lið fólk sem sá um „cutscenes“ eða milligrafík og tónlist fyrir leikinn en milligrafíkin var í höndum Örnu Beth og Ingi Már Úlfarsson, sem er partur af pródúsertíminu Reddlights, sá um hljóðvinnsluna.
Útkoman er frábær og það er búið að vera mjög skemmtilegt að vinna með þessum yndislega hópi.“

„Þetta er í raun og veru bara í stíl við restina af eitís-tölvuleikjunum. Þeir litu oft út fyrir að vera auðveldir við fyrstu sýn en voru svo ótrúlega krefjandi.
Donkey Kong er mjög gott dæmi um það og þess má geta að það er uppáhalds arcade-leikurinn minn og það er hægt að spila hann á Fredda.“
Er atburðarásin í leiknum bara venjulegt kvöld úti á lífinu fyrir þig?
„Það má alveg segja það. Ég fer ekki út á skemmtanalífið án þess að einhver vilji fara á trúnó við mig eða rappa í eyrað á mér. Svo held ég að það séu margir sem tengja við það að villast inn á B5 og festast á troðfullu dansgólfinu. Það getur verið fínt að detta inn á B5 en það getur líka verið algjört hell.
Mér líður langbest á Prikinu þegar ég fer út að skemmta mér. Hanga hjá DJ-borðinu á neðri hæðinni og horfa á dýragarðinn meðan ljósin sveiflast í takt við tónlistina,“ segir Gauti að lokum.