Ragnheiður spilar sinn fyrsta landsleik í Höllinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2016 12:44 Ragnheiður Benónýsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir spila báðar fyrsta landsleikinn sinn í þessari landsleikjatörn. Vísir/Vilhelm
Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, hefur gert eina breytingu á liðinu fyrir leikinn á móti Portúgal í Laugardalshöllinni í undankeppni EM í kvöld. Pálína Gunnlaugsdóttir dettur út vegna meiðsla sem hún varð fyrir í leiknum á móti Slóvakíu á laugardaginn. Pálína er einn reynslumesti leikmaður íslenska liðsins og munar því mikið um hana. Í stað Pálínu tekur Ívar inn Skallagrímskonuna Ragnheiði Benónýsdóttur sem mun því spila sinn fyrsta A-landsleik í kvöld. Þær Pálína og Ragnheiður spila þó ekki sömu stöðu. Pálína er skotbakvörður en Ragnheiður spilar undir körfunni. Ragnheiður Benónýsdóttir er uppalin Valskona en hún er á sínu fyrsta tímabili með Skallagrími og er með 9,0 stig og 8,7 fráköst að meðaltali í leik í Domino´s deildinni. Ragnheiður er þriðji leikmaðurinn sem spilar sinn fyrsta landsleik í þessari landsleikjatörn en Emelía Ósk Gunnarsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir spiluðu sinn fyrsta landsleik út í Slóvakíu á laugardaginn. Portúgal er með einn sigur og fjögur töp eins íslenska liðið en vann tólf stiga sigur í fyrri leik þjóðanna út í Portúgal, 68-56.Íslenska landsliðið í kvöld: Nr. 5 Ragnheiður Benónýsdóttir Nr. 6 Salbjörg Sævarsdóttir Nr. 7. Emelía Ósk Gunnarsdóttir Nr. 8. Ingunn Embla Kristínardóttir Nr. 9. Sigrún Ámundadóttir Nr. 10. Gunnhildur Gunnarsdóttir Nr. 12. Sandra Lind Þrastardóttir Nr. 13. Ingibjörg Jakobsdóttir Nr. 14. Hallveig Jónsdóttir Nr. 15. Thelma Dís Ágústsdóttir Nr. 22. Berglind Gunnarsdóttir Nr. 25. Ragna Margrét Brynjarsdóttir Þjálfari: Ívar ÁsgrímssonAðstoðarþjálfari: Bjarni Magnússon
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira