Skoðun

Bjartari horfur í skólamálum

Skúli Helgason skrifar
Mikil umræða hefur verið um skólamál í tengslum við kjaramál kennara. Kennarar hafa um áratugaskeið barist fyrir leiðréttingum launa sinna og þó ákveðinn árangur hafi náðst þarf að gera enn betur til að kennarar njóti að fullu verðleika sinna eins og kollegar þeirra í nágrannalöndum. Í vikunni greiða kennarar atkvæði um nýjan kjarasamning sem er áfangi í rétta átt en samhliða honum ætlum við að gera úrbætur á vinnuumhverfi kennara sem gerir þeim kleift að nýta fagmennsku sína, þekkingu og reynslu í uppbyggilegum starfsaðstæðum þar sem kennsla, undirbúningur hennar og starfsþróun er í forgangi.

Við munum hefja þessa vinnu hjá borginni strax í þessari viku og höfum kallað til samstarfs félög kennara, stjórnendur, foreldra, fulltrúa háskólasamfélagsins og sveitarfélaga og einsetjum okkur að ná saman um aðgerðir á fyrstu mánuðum nýs árs. Þá er alveg skýrt að nýr kjarasamningur mun ekki leiða til aukinnar hagræðingar í skólamálum borgarinnar.

Umbætur á næsta ári

Í dag afgreiðum við í borgarstjórn fjárhagsáætlun næsta árs og þar eru skólamál í forgangi. Fjárveitingar aukast til skólaþróunar sem samsvarar C þætti í gildandi kjarasamningi grunnskólakennara, námsráðgjöf á unglingastigi verður efld, aukin áhersla verður lögð á launuð námsleyfi starfsfólks á leikskólum og frístundaheimilum, framlög til íslensku- og móðurmálskennslu fyrir börn af erlendum uppruna aukast verulega sem og túlkaþjónusta, vægi list-, verk- og tæknináms verður aukið, fjölgað verður nemendum í öllum skólahljómsveitum borgarinnar til að mæta vaxandi eftirspurn, nýtt fjármagn kemur til innleiðingar Barnasáttmálans og lýðræðisverkefna á borð við ungmennaþing og umboðsmann ungmenna.

Við eflum sérhæft klúbbastarf félagsmiðstöðva með áherslu á forvarnir og félagslegan stuðning. Þá er aukinn til muna stuðningur við leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili varðandi málörvun og læsi en Miðja máls og læsis mun stýra aukinni ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu við allar starfsstöðvar. Þá verður aukið fjármagn í endurbætur og viðhald skólahúsnæðis og skólalóða. Ýmis jákvæð teikn eru því á lofti í skóla- og frístundamálum Reykjavíkurborgar sem koma til framkvæmda á komandi ári.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×