Ramos bjargaði stigi fyrir Real Madrid á lokamínútunni | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. desember 2016 17:15 Ronaldo, Modridc og Marcelo reyna að stöðva Messi í dag. vísir/getty
Sergio Ramos var hetja Madrídinga í 1-1 jafntefli gegn Barcelona í El Clásico slagnum á Nývangi í dag en jöfnunarmark Ramos kom á 90. mínútu eftir að Luis Suárez kom Börsungum yfir. Fyrri hálfleikurinn var hreint út sagt lélegur en liðunum gekk illa að skapa sér færi. Var staðan markalaus í hálfleik eftir tíðindarlitlar 45. mínútur en það var meira líf í seinni hálfleik. Suárez kom Börsungum yfir með skalla eftir aukaspyrnu Neymars á 53. mínútu en Neymar fékk sjálfur færi til að bæta við marki stuttu síðar. Lék hann þá á Dani Carvajal og komst einn gegn Keylor Navas en skot hans af stuttu færi fór hátt yfir. Madrídingar fengu aukaspyrnu undir lok venjulegs leiktíma og sendi króatíski galdramaðurinn Luka Modric boltann inn á Sergio Ramos sem skallaði í netið af stuttu færi. Börsungar voru nálægt því að stela sigrinum undir lokin en Casemiro bjargaði á línu fyrir Real Madrid eftir skalla. Jafnteflið þýðir að Madrídingar halda sex stiga forskoti á Barcelona á toppi deildarinnar og eru áfram taplausir í spænsku deildinni en þetta var þriðja jafntefli Barcelona í röð.Suarez kemur Barcelona yfir: Ramos jafnar metin:
Spænski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Sjá meira