Sér ekki eftir að hafa svindlað allan ferilinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. janúar 2017 19:00
Danski hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen, sem var hársbreidd frá sigri í Tour de France árið 2007 áður en honum var kippt úr keppni af eigin liði, hélt afar áhugaverðan fyrirlestur í háskólanum í Reykjavík í gær þar sem hann sagðist ekki í eina sekúndu sjá eftir því að hafa notað árangursbætandi efni á glæstum ferli sínum. Rasmussen var einn þriggja fyrirlesara á ráðstefnu um lyfjamál sem ÍSÍ og ÍBR héldu sem hluta af Reykjavíkurleikunum í gær. Auglýst var að hann ætlaði að tala um lyfjamisnotkun á ferlinum, sem og hann gerði, en þeir sem héldu að hann væri fullur iðrunnar kom ræða hans mikið á óvart. Fyrirlesturinn snerist meira um hversu brotið lyfjaeftirlitskerfið er og muninn á því hvernig komið er fram við íþróttamenn eftir því hversu frægir og góðir þeir eru. „Það er mikilvægt að fólk séupplýstara um hvað er í alvörunni að gerast í þessum heimi. Þetta er ekki bara svart og hvítt. Það er mikilvægt að skilja hvernig þetta virkar fyrir íþróttamennina og hvernig þeir komast á þann stað að nota árangursbætandi lyf. Þessir íþróttamenn eru mannlegir en bara af öðru kyni en sófakartöflurnar heima. Viljinn til að vinna er bara meiri,“ sagði Rasmussen við íþróttadeild eftir fyrirlesturinn í gær. Daninn, sem viðurkenndi árið 2013 að hafa notað árngursbætandi efni allan sinn feril, gekk fram af sumum í salnum eins og Líney Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ, sem ofbauð afstaða Danans og spurði hann úr sal hvort eftirsjáin væri hreinlega engin. Eina sem hann sér eftir er að fá fleiri með sér í lyfin. „Við erum afurð ákveðins menningarheims. Það tekur langan tíma að breyta svona langri sögu. Það er auðvelt að breyta skoðun eins manns á einni nóttu og það er alltaf auðveldara að breyta skoðun annarra en þinni eigin. Þessir tveir heimar eru mjög langt frá hvorum öðrum,“ segir hann. Rasmussen er stórstjarna í hjólreiðum. Hann var með góða forystu í Tour de France þegar fjórir áfangar voru eftir árið 2007 og átti sigurinn vísan. Þá var honum kippt úr keppni þegar upp komst að hann laug að lyfjaeftirlitinu um staðsetningu sína tveimur árum áður. Hann er reyndar ekki sammála þeirri fullyrðingu en ekkert varð af sigrinum. Það eina sem hann sér eftir þar er að hans eigin lið eyðilagði fyrir honum sigurinn. „Vandamálið er að þeir náðu mér aldrei. Það hefði verið mun auðveldara fyrir mig að sætta mig við að vera rekinn úr Tour de France ef ég hefði fallið á lyfjaprófi því þá hefði ég bara verið heimskur. Málið er að ég hef aldrei á ævinni fallið á lyfjaprófi. Það sem særði mig var það, að mitt eigið lið tók mig úr keppninni. Það var sama liðið sem stóð fyrir þessu öllu og lét mig fá blóðpokana, faldi EPO í rútunni og gaf mér insúlín. Það var þetta lið sem tók mig úr keppni því enginn annar gat gert það samkvæmt reglubókinni,“ segir Michael Rassmussen.Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að ofan en nánar verður rætt við Michael Rasmussen í Fréttablaðinu á morgun.
Aðrar íþróttir Tengdar fréttir Ólík og áhugaverð sjónarhorn í boði á ráðstefnu á Íslandi um lyfjamál í íþróttaheiminum Þrír fyrirlesarar með mjög ólíka aðkomu að lyfjamálum í íþróttum verða með fyrirlestur á ráðstefna um lyfjamál íþróttahreyfingarinnar sem haldin verður á fimmtudaginn í Háskólanum í Reykjavík. Ráðstefnan er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. 24. janúar 2017 16:45 Fæðubótarefni geta verið hættuleg fyrir íþróttafólk og almenna neytendur Dr. Ron Maughan fræðir fólk um hættur fæðubótarefna á ráðstefnu um lyfjamál á morgun. 25. janúar 2017 19:30 Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira
Ólík og áhugaverð sjónarhorn í boði á ráðstefnu á Íslandi um lyfjamál í íþróttaheiminum Þrír fyrirlesarar með mjög ólíka aðkomu að lyfjamálum í íþróttum verða með fyrirlestur á ráðstefna um lyfjamál íþróttahreyfingarinnar sem haldin verður á fimmtudaginn í Háskólanum í Reykjavík. Ráðstefnan er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. 24. janúar 2017 16:45
Fæðubótarefni geta verið hættuleg fyrir íþróttafólk og almenna neytendur Dr. Ron Maughan fræðir fólk um hættur fæðubótarefna á ráðstefnu um lyfjamál á morgun. 25. janúar 2017 19:30