Skoraði fleiri mörk en hin lið riðilsins til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2017 22:15 Sigríður María S Sigurðardóttir. Vísir/Eyþór
KR er komið í undanúrslit Reykjavíkurmótsins eftir öruggan sigur í B-riðli. KR vann báða leiki sína í riðlinum á móti HK/Víkingi og Fjölni. Sigríður María S Sigurðardóttir skoraði öll þrjú mörkin í 3-0 sigri á KR í Egilshöllinni í gær en hún skoraði þar með þrennu í öðrum leiknum í röð. Sigríður María skoraði líka þrennu í 5-1 sigri á HK/Víkingi fyrir tveimur vikum síðan. Sigríður María var því alls með sex mörk í riðlakeppni Reykjavíkurmótsins eða fleiri mörk en hin lið riðilsins, HK/Víkingur (3) og Fjölnir (2) til samans. Enginn annar leikmaður riðilsins skoraði meira en eitt mark. Sigríður María varð líka markahæsti leikmaður riðlakeppninnar og skoraði tvöfalt meira en næsta kona þrátt fyrir að leikmennirnir i hinum riðlinum hafi fengið leik meira. Fylkir og Valur komust áfram úr A-riðlinum eftir örugga sigra í gær. Fylkir vann 6-1 sigur á ÍR og vann riðilinn. Ragnheiður Erla Garðarsdóttir og Hulda Hrund Arnarsdóttir skoruðu báðar tvö mörk fyrir Fylki í sigrinum á ÍR en hin mörkin skoruðu þær Kristín Þóra Birgisdóttir og Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir. Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk fyrir Val í 6-2 sigri á Þrótti. Vesna Elísa Smiljkovic, Laufey Björnsdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru allar á skotskónum en síðasta markið var sjálfsmark Þróttara. Undanúrslit Reykjavíkurmótsins er klár. Fylkir mætir Fjölni klukkan 19.00 á fimmtudagskvöldið og strax á eftir spilar KR við Val. Sigurvegararnir mætast í úrslitaleiknum fimmtudaginn 23. febrúar.Markahæstar í riðlakeppni Reykjavíkurmótsins: Sigríður María S Sigurðardóttir, KR 6 Hulda Hrund Arnarsdóttir Fylki 3 Elín Metta Jensen, Val 3 Hlíf Hauksdóttir, Val 2 Kristín Þóra Birgisdóttir, Fylki 2 Ástrós Eiðsdóttir, ÍR 2 Ragnheiður Erla Garðarsdóttir, Fylki 2 Málfríður Anna Eiríksdóttir, Val 2
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Fram - Breiðablik | Topplið sækir botnlið heim Þór/KA - Grindavík/Njarðvík | Nýliðar fyrir norðan FH - Þróttur R. | Hörkuslagur í Hafnarfirði Víkingur R. - ÍBV | Leita fyrsta sigursins í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Sjá meira