Engin núverandi landsliðskona komst í úrvalslið íslenska kvennahandboltans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2017 08:15 Systurnar Hrafnhildur Skúladóttir og Dagný Skúladóttir eru báðar í úrvalsliðinu. Vísir/Pjetur
Landsliðskonurnar Rakel Dögg Bragadóttir, Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen Knútsdóttir eru meðal þeirra sem komust ekki í úrvalslið íslenska kvennahandboltans. Úrvalslið Íslands í handbolta kvenna frá upphafi handboltans til dagsins í dag hefur verið valið en Morgunblaðið fékk fólk úr handboltahreyfingunni til að velja bestu handboltakonur allra tíma á Íslandi. Kristján Jónsson hélt utan um valið og segir frá úrvalsliðinu í Morgunblaðinu í dag. Aðeins tveir leikmenn í liðinu eru enn að spila, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hanna Guðrún Stefánsdóttir en þær voru hvorugar þó með í síðustu verkefnum íslenska landsliðsins. Fjórir leikmanna úrvalsliðsins voru aftur á móti í liðinu sem tryggði Íslandi í fyrsta skipti sæti á stórmóti á EM 2010. Tveir leikmenn íslenska landsliðsins í dag, þær Karen Knútsdóttir og Rut Jónsdóttir, voru nálægt því að komast inn. Karen fékk flest atkvæði sem leikstjórnandi en vinstri skyttan Guðríður Guðjónsdóttir fékk fleiri heildaratkvæði og var sett inn á miðjuna. Guðríður og Hrafnhildur Skúladóttir fengu báðar fleiri atkvæði en Karen og voru því báðar í úrvalsliðinu. Hrafnhildur er markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi og Guðríður er sigursælasta handboltakona Íslands. Hrafnhildur er ekki sú eina úr fjölskyldunni sem er í liðinu því Dagný Skúladóttir systir hennar er í vinstra horninu. Dagný og hinn hornamaður úrvalsliðsins, Hanna Guðrún Stefánsdóttir, fengu báðar glæsilega kosningu eins og kemur fram í veglegri opnugrein í Morgunblaðinu í dag.Úrvalslið íslenska kvennahandboltans frá upphafi: Markvörður: Kolbrún Jóhannsdóttir Vinstra horn: Dagný Skúladóttir Vinstri skytta: Hrafnhildur Skúladóttir Leikstjórnandi: Guðríður Guðjónsdóttir Hægri skytta: Ragnheiður Stephensen Hægra horn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir Línumaður: Guðný Gunnsteinsdóttir Varnarmaður: Anna Úrsúla GuðmundsdóttirNæstar því að komast inn samkvæmt upptalinu í grein Morgunblaðsins: Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi Florentina Stanciu, markvörður Rut Jónsdóttir, hægri skytta Ramune Pekarskyte, vinstri skytta
Handbolti Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira