Bretar munu bíta frá sér verði þeim boðinn slæmur Brexit samningur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. mars 2017 21:56 Philip Hammond, fjármálaráðherra Bretlands. Vísir/AFP
Philip Hammond, fjármálaráðherra Bretlands, segir að Bretar muni bíta frá sér í komandi Brexit samningaviðræðum við Evrópusambandið, fallist sambandið ekki á að gera fríverslunarsamning við landið. Guardian greinir frá. Í yfirlýsingunni sem beindist til leiðtoga Evrópusambandsins, segir Hammond að Bretar muni gera hvað sem þarf að gera, til þess að tryggja samkeppnishæfni landsins fari svo að landið verði án fríverslunarsamnings við Evrópusambandið. „Ef það er einhver í Evrópusambandinu sem heldur að Bretland muni bara sætta sig við að lúta í lægra haldi ef samningar muni ekki nást við sambandið, að þá er það ekki að fara að gerast.“ „Breska þjóðin býr yfir miklum baráttuanda og mun berjast. Við munum gera fjölda fríverslunarsamninga við þjóðir út um allan heim. Við munum stunda viðskipti út um allan heim og við munum gera hvað sem er til þess að tryggja samkeppnishæfni Bretlands.“ Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, John Major, hafði áður kallað eftir því að ráðamenn ríkisstjórnarinnar í Bretlandi myndu slá á væntingar almennings þar í landi og halda loforðum um góða útkomu í komandi samningaviðræðum í lágmarki. Ljóst er að Hammond varð ekki við beiðni Major. Hammond tók þó fram að Bretar myndu standa við allar skuldbindingar sínar gagnvart Evrópusambandinu og þar með talið borga þau gjöld sem upp koma þegar landið yfirgefur sambandið. „Við erum að fara út í samningaviðræður. Við búumst við því að geta náð fram fríverslunarsamningi við vini okkar í Evrópusambandinu, en þeir verða að hafa það á hreinu að sá valmöguleiki að Bretland einangrist á alþjóðavettvangi, er einfaldlega ekki til staðar.“
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira