Torres missti meðvitund og var fluttur á sjúkrahús Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2017 22:24
Fernando Torres, fyrrum leikmaður Liverpool og Chelsea, meiddist alvarlega í leik með Atlético Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Atlético Madrid gerði þá 1-1 jafntefli við Deportivo La Coruña þar sem Antoine Griezmann skoraði jöfnunarmarið á 68. mínútu eftir að heimamenn höfðu verið yfir frá þrettándu mínútu. Fernando Torres kom inná sem varamaður á 65. mínútu eða þremur mínútum áður en Atlético-liðið jafnaði metin. Torres kláraði hinsvegar ekki leikinn. Hann fékk slæmt höfuðhögg á 85. mínútu eftir að hafa farið upp í skallaeinvígi og datt beint á höfuðið að því virtist alveg meðvitundarlaus. Liðsfélagar Fernando Torres stukku til hjálpar honum og höfðu greinilega miklar áhyggjur af Torres sem lá hreyfingarlaus. Það voru sterk viðbrögð þeirra sem ýttu undir það að þetta væri mjög alvarlegt. Torres fékk síðan hjálp frá læknaliði Atlético Madrid og var fluttur á sjúkrahús. Atlético Madrid gaf seinna frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að Fernando Torres væri komin á sjúkrahús og þar hafði komið í ljós hann hafi fengið heilahristing. Hann mun eyða nóttinni á sjúkrahúsinu þar sem verður fylgst vel með ástandi hans. Liðsfélagar Fernando Torres hafa fengið góðar fréttir af honum og hann var kominn með meðvitund á sjúkrahúsinu.
Spænski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Sjá meira