James öflugur undir lokin gegn besta varnarliði deildarinnar | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. mars 2017 07:14 Sautján af 33 stigum James komu í 4. leikhluta. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. LeBron James skoraði 17 stig í 4. leikhluta þegar Cleveland Cavaliers vann átta stiga sigur, 91-83, á Utah Jazz, besta varnarliði deildarinnar, á heimavelli. James skoraði alls 33 stig og tók auk þess 10 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Kyrie Irving skoraði 21 stig í fyrstu þremur leikhlutunum en hann lék ekkert í 4. leikhluta vegna meiðsla. Rudy Gobert stóð upp úr í liði Utah en Frakkinn skoraði 20 stig og tók 19 fráköst. Golden State Warriors átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Orlando Magic að velli, 122-92. Klay Thompson var stigahæstur í liði Golden State með 29 stig, en 21 þeirra kom í 1. leikhluta. Stephen Curry bætti 25 stigum og níu stoðsendingum við. Russell Westbrook var með þrennu þegar Oklahoma City Thunder bar sigurorð af Toronto Raptors, 102-123, á útivelli. Westbrook skoraði 24 stig, tók 10 fráköst og gaf 16 stoðsendingar. Þetta var 34. þrennan hans á tímabilinu. Victor Oladipo var næststigahæstur í liði Oklahoma með 23 stig. Liðið hefur unnið fjóra leiki í röð. DeMar DeRozan skoraði 22 stig fyrir Toronto sem er í 4. sæti Austurdeildarinnar.Úrslitin í nótt: Cleveland 91-83 Utah Golden State 122-92 Orlando Toronto 102-123 Oklahoma Atlanta 91-103 Memphis Denver 129-114 LA Clippers
NBA Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira