Ennþá svangar Hildur Björnsdóttir skrifar 10. mars 2017 07:00 Ég upplifði það fyrst fjórtán ára. Að minnsta kosti áþreifanlega. Ég sat við matarborð og bað um ábót. Beiðninni var góðfúslega hafnað. Lítið var eftir af mat og annar aðili svangur. Sá var 10 ára drengur. Hann hafði forgang – því strákar þurfa meira. Atvikið þótti mér óréttlátt. Ég gat ómögulega skilið samhengið. Hvers vegna þurfti 10 ára drengur meira en 14 ára stelpa? Ég var ennþá svöng. Nýlega sat ég við annað matarborð. Þar sat önnur kona og tveir menn. Við snæddum flatbökur. Samanlagt 24 sneiðar. Þegar við konurnar höfðum saman klárað fjórar, höfðu karlarnir sporðrennt nítján. Þeir gáfu okkur góðfúslegt leyfi til að deila síðustu sneiðinni. Við vorum ennþá svangar. Flatbökufrekjurnar eru mér kærar – 10 ára drengurinn einnig. Alls engir yfirgangsmenn. Eintómir ljúflingar. En atvikin eru dæmigerð. Ekki fyrir þá. Bara almennt. Fjölmargir kimar samfélagsins senda skilaboð. Margvísleg skilaboð. Oft óviljandi og stundum óheppileg. Þau smjúga inn í undirmeðvitundina og hafa víðtæk áhrif. Það gerist víða. Ekki bara á matmálstímum. Líka í íþróttakeppnum. Í starfskjörum. Í viðtalsþáttum. Á launaseðlum. Ómeðvitað og oftsinnis. Áætlað að konur þurfi minna. Konur vilji minna. Konur sætti sig við minna. Þær fá minni skammta. Smærri bikar. Minni bíl. Verri áheyrn. Lægri laun. Það horfir sífellt til betri vegar. Við stöndum framarlega í alþjóðlegum samanburði. Þó er enn langt í land. Margt þarf að breytast. Stækka og hækka. Aukast og batna. Konur þurfa meira. Þær vilja ábót og eru ennþá svangar. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hildur Björnsdóttir Mest lesið Hvenær leiddist þér síðast? Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson Skoðun Yfirfull fangelsi, brostið kerfi Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson Skoðun