Ágúst íhugar framboð til formanns HSÍ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2017 12:30 Ágúst fór með kvennalandsliðið á tvö stórmót. vísir/anton
Ágúst Jóhannsson, fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og núverandi þjálfari karlaliðs KR, íhugar að bjóða sig fram til formanns HSÍ. Þetta staðfesti Ágúst í samtali við handboltavefinn fimmeinn.is í gær. Þar segist Ágúst upphaflega hafa ætlað að bjóða sig fram í stjórn HSÍ en síðan hafi komið fram sú hugmynd að hann biði sig fram til formanns sambandsins á ársþingi HSÍ 22. apríl næstkomandi. „Það var nú bara hugmyndin hjá mér að bjóða mig fram sem stjórnarmann hjá HSÍ. Eftir að ég fór að viðra það við menn hafa þónokkrir komið að máli við mig og spurt af hverju ég fari bara ekki alla leið og bjóði mig fram í formanninn og það er ég að skoða í rólegheitum,“ sagði Ágúst við fimmeinn.is. Ágúst segir að handboltinn á Íslandi verið í of mikilli vörn undanfarin ár. „Olís deild karla og kvenna þarf að vera meira áberandi og finnst mér að HSÍ þurfi að gera betur í kynningarmálum á því sem er að gerast hér heima. Til þess þarf t.d. að vinna markvissara í kynningu á því sem er að gera, bæta umgjörðina í kringum leiki, setja standardinn mun hærra og auka samstarfið við félögin,“ sagði Ágúst. „Handboltinn á að vera mun framar hér heima og þarf að spyrna við fótunum innan hreyfingarinnar til að færa þessa frábæru íþrótt þangað sem hún á að vera. Ég vil sjá okkur nær fótboltanum.“ Fresturinn til að bjóða sig fram til formanns HSÍ rennur út 1. apríl næstkomandi. Guðmundur B. Ólafsson hefur verið formaður sambandsins frá árinu 2013.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira