Varnarmálaráðherra Bretlands kennir Rússum um dauða sýrlenskra borgara Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. apríl 2017 10:30 Michael Fallon, varnarmálaráðherra Bretlands, er ekki sáttur með Rússa. Vísir/EPA
Michael Fallon, varnarmálaráðherra Bretlands, segir að Rússum sé um að kenna, „fyrir hvert og eitt einasta mannsfall meðal almennra borgara í Sýrlandi,“ í eiturvopnaárásinni sem gerð var í síðustu viku. Þetta kemur fram í skoðanapistli ráðherrans í Sunday Times.Fallon segir að sem helsti stuðningsaðili og verndari sýrlenska stjórnarhersins, séu Rússar ábyrgir. Hann kallar eftir því að Vladimír Pútín, Rússlandsforseti hætti stuðning sínum við Assad og aðstoði vesturlönd við að koma á friði í landinu. Ummæli Fallon koma í kjölfar fregna af því að Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands ákvað að hætta við fyrirhugaða heimsókn sína til Rússlands, vegna stuðnings Rússa við ríkisstjórn Bashar al-Assad.„Á síðustu árum hafa þeir haft nóg af tækifærum til þess að beita sér til þess að stöðva þessa borgarastyrjöld. Rússar verða nú að beita sér til þess að koma þessari ríkisstjórn frá.“ Þá segir Fallon jafnframt að einhver sem beiti tunnusprengjum og eiturefnavopnum gagnvart þjóð sinni geti aldrei orðið framtíðarleiðtogi þeirrar þjóðar. Ákvörðun breska utanríkisráðherrans um að sækja Rússland ekki heim hefur verið harðlega gagnrýnd bæði af Rússum en einnig af öðrum stjórnmálamönnum í Bretlandi. Talsmaður Skoska þjóðarflokksins í utanríkismálum, Alex Salmond, hefur til að mynda bent á að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Rex Tillerson, ætli sér að heimsækja Rússland á næstu dögum og að ekki hafi verið hætt við þá heimsókn.„Hver eru rökin fyrir því að heimsækja ekki Rússland? Rex Tillerson fer á miðvikudag. Er utanríkisráðherranum ekki treystandi, vegna þess að hann gæti verið á annarri línu en Bandaríkjamenn?“
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira