Dæmdur til að greiða skólanum sekt eftir að hafa farið með dóttur sína í frí í leyfisleysi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. apríl 2017 14:52 Jon Platt ræðir við fjölmiðla eftir dóm Hæstaréttar í dag.
Hæstiréttur Bretlands hefur dæmt Jon Platt, föður stúlku, til að greiða skóla stúlkunnar 120 pund í sekt vegna þess að hann fór með dóttur sína í frí til Flórída án þess að hafa fengið leyfi frá skólanum til að fara með barnið í frí. Sektin var upphaflega 60 pund. Platt hafði áður unnið málið á lægra dómstigi en hann vildi ekki greiða sektina þar sem hann taldi að dóttir sín hefði mætt reglulega í skólann og gæti þess vegna farið í frí með fjölskyldunni í apríl 2015. Kennarar og foreldrar um allt Bretland hafa fylgst náið með dómsmálinu þar sem það er talið hafa fordæmisgildi. Lady Hale, varaforseti Hæstaréttar Bretlands, sagði að óleyfilegar fjarvistir gætu haft skaðleg áhrif, ekki aðeins á menntun barnsins heldur einnig á vinnu aðra nemenda. „Ef einn nemandi getur verið tekinn úr skóla hvenær sem er þá á það líka við um aðra nemendur... Hvaða menntakerfi sem er væntir þess að reglum sé fylgt. Það að gera það ekki er ósanngjarnt gagnvart þeim foreldrum sem fylgja reglunum, hvað svo sem það kann að kosta eða hvaða óþægindi því fylgja fyrir þá foreldra sem vilja fá frí fyrir börnin sín.“ Í málinu var deilt um það hvað það þýðir samkvæmt breskum lögum „að mæta reglulega í skólann“ og samkvæmt dómi Hæstaréttar þýðir það ekki að mæta nógu oft í skólann heldur samkvæmt mætingarreglum viðkomandi menntastofnunar. Málið fer nú aftur til lægra dómstigs þar sem kröfu Platt um frávísun málsins verður hafnað samkvæmt frétt Guardian um málið. Platt sagði þó eftir uppkvaðningu dómsins í dag að hann muni áfram berjast gegn því að borga sektina þegar málið fer aftur fyrir dóm. Platt sagði að niðurstaða Hæstaréttar þýddi að foreldrar og forráðamenn væru ekki lengur dómarar í því hvað væri best fyrir börnin þeirra. „Að mæta reglulega í skólann þýðir ekki lengur að mæta nægilega oft heldur að mæta á öllum þeim dögum og alltaf þegar skólinn krefst þess. Allar óleyfilegar fjarvistir, og líka það að vera of seinn í skólann, er nú glæpur,“ sagði Platt. Nánar má lesa um málið á vef Guardian og vef BBC.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira