Karzai fordæmir sprengjuárásina Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 15. apríl 2017 07:00 Reykmökkurinn eftir sprenginguna. Nordicphotos/AFP „
Þessi árás var ómannúðleg og grimmileg misnotkun á landi okkar,“ sagði Hamid Karzai, fyrrverandi forseti Afganistans, í gær um sprengjuárás Bandaríkjahers á bækistöðvar ISIS í Nangarhar-fylki þar í landi í vikunni. Herinn varpaði stærstu sprengju, svokallaðri móður allra sprengja, sem hann hefur nokkurn tímann notað, að kjarnorkusprengjum undanskildum, á bækistöðvarnar og samkvæmt afganska varnarmálaráðuneytinu féllu 36 skæruliðar í árásinni. Einna helst var um að ræða kerfi neðanjarðarganga. Samkvæmt talsmanni Ashraf Ghani, forseta Afganistans, var ISIS-herforinginn Siddiq Yar á meðal hinna föllnu. Sagði talsmaðurinn að skæruliðarnir í göngunum hafi komið frá Pakistan og væru að herja á fólk á svæðinu umhverfis bækistöðvarnar. Abdullah Abdullah, framkvæmdastjóri Afganistans, sagði á blaðamannafundi að fullt samráð hefði verið haft við afgönsku ríkisstjórnina. Reynt hafi verið að forðast að skaða almenna borgara og að það virðist hafa tekist.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Lentu aftur í óförum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira