Flóttafólk selt á þrælamörkuðum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 11. apríl 2017 15:53 Oftast er um að ræða flóttamenn sem eru að reyna að komast til Evrópu. Vísir/Getty
Hundruðir ungra karlmanna frá afríkulöndum sunnan Sahara hafa verið seldir á þrælamörkuðum í Líbíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninnar, IOM. Oftast er um að ræða flóttamenn sem eru að reyna að komast til Evrópu. Í skýrslunni er meðal annars rætt við fórnarlömb slíks mansals sem segjast hafa verið tekin til fanga af smyglurum eða uppreisnarhermönnum og seldir á torgum eða bílastæðageymslum. Yfirmaður IOM í Lýbíu sagði í samtali við BBC að einstaklingar með fagkunnáttu við málningar, flísalagningu eða annað slíkt, væru seldir hærra verði en aðrir. Maður frá Senegal, sem IOM ræddi við, sagðist hafa verið seldur á slíkum markaði í borginni Sabha í suður Líbíu og því næst verið færður í einskonar fangelsi þar sem meira en 100 manns var haldið í gíslingu. Konur voru einnig seldar á slíkum mörkuðum, iðulega í kynlífsþrælkun. „Þeir staðfestu allir að eiga í hættu á að vera seldir í þrælahald á torgum og í bílageymslum í Sabha, annaðhvort af bílstjórum sínum eða af heimamönnum sem ráða flóttafólk í dagbundin störf, oft í iðnaðarverk,“ er haft eftir starfsmanni IOM í frétt á vef BBC. „Seinna, í stað þess að greiða þeim laun, selja þeir fórnarlömbin áfram til nýrra kaupenda.“
Flóttamenn Senegal Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira