Boston vann þriðja leikinn í röð og er einum sigri frá undanúrslitunum | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. apríl 2017 07:00 Isaiah Thomas skorar í nótt. vísir/getty
Boston Celtics er komið í 3-2 í rimmunni á móti Chicago Bulls í átta liða úrslitum austurdeildar NBA en Boston-liðið vann fimmta leikinn á heimavelli sínum í nótt, 108-97. Boston vann austurdeildina en Chicago rétt slefaði inn í úrslitakeppnina með því að ná áttunda sætinu. Samt sem áður var búist við spennandi seríu. Chicago virtist ætla að ganga frá Celtics þegar það komst í 2-0 með tveimur sigrum í Boston en allt snerist á hvolf í rimmunni þegar Rajon Rondo, leikstjórnandi Bulls, meiddist. Hann var ekki með í nótt en Chicago er búið að tapa þremur í röð síðan hann meiddist. Isaiah Thomas, leikstjórnandi Boston, skoraði 24 stig í nótt og það sama gerði Avery Bradley og Al Horford skoraði 21 stig fyrir Celtics sem getur komist í undanúrslitin með sigri í Chicago í næsta leik. Dwayne Wade var stigahæstur gestanna með 26 stig en Jimmy Butler var ansi rólegur og skoraði bara fjórtán stig. Washington Wizards er svo komið í 3-2 á móti Atlanta Hawks en Washington vann, 103-99, á heimavelli í nótt. Atlanta þarf sigur í næsta leik til að kreista fram oddaleik. Bradley Beal skoraði 27 stig fyrir heimamenn og John Wall 20 stig auk þess sem hann gaf fjórtán stoðsendingar en Dennis Schröder átti besta leik ferilsins í úrslitakeppni fyrir Atlanta og skoraði 29 stig og gaf ellefu stoðsendingar.Sjötti leikur í rimmu Boston og Chicago verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á miðnætti á föstudagskvöld.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira