Skoraði 53 stig á afmælisdegi nýlátinnar systur sinna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2017 10:30 Isaiah Thomas var í hjartnæmu viðtali eftir leikinn í nótt. Vísir/Getty
Isiah Thomas átti stórleik og skoraði 53 stig fyrir Boston Celtics sem er komið í 2-0 forystu gegn Washington Wizards í undanúrslitum Austurdeildarinnar í leik liðanna í úrslitakeppni NBA í nótt. Thomas vantaði bara eitt stig upp á að jafna stigamet Boston Celtics í úrslitakeppninni en eftir leik tileinkaði hann frammistöðu sína systur sinni, sem lést nýverið í umferðarslysi. „Systir mín á afmæli í dag. Hún hefði orðið 23 ára og það minnsta sem ég gat gert er að spila fyrir hana,“ sagði Thomas en systir hans, Chyna, lést fyrir aðeins rúmum tveimur vikum. „Fjölskyldan mín og vinir segja mér bara að halda áfram. Systir mín hefði ekki viljað að ég myndi hætta.“ „Það eina sem er að um leið og ég yfirgef íþróttahúsið þá tekur raunveruleikinn við og hún er ekki hér. Það er það sem er erfitt. Þegar ég ég er í þessari höll get ég einbeitt mér að því að spila og allt sem ég geri er fyrir hana.“ Boston lenti 2-0 undir gegn Chicago Bulls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en það voru fyrstu leikir Thomas eftir að systir hans lést. Síðan þá hefur Boston unnið sex leiki í röð en þess má geta að Thomas skoraði 33 stig í sigri Boston á Washington í fyrsta leik liðanna.
NBA Tengdar fréttir Sögulegur leikur Isaiah Thomas og Boston vann sjötta í röð Boston hafði betur gegn Washington í framlengdum leik og Golden State vann Utah. 3. maí 2017 07:01 Öruggt hjá Houston | Thomas stigahæstur þrátt fyrir systurmissinn Houston Rockets rúllaði yfir Oklahoma City Thunder, 118-87, í fyrsta leik liðanna í 1. umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 17. apríl 2017 11:20 Systir aðalstjörnu Boston lést í bílslysi Chyna Thomas, systir Isiah Thomas leikmanns Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta, lést í bílslysi í Washington í gærmorgun. 16. apríl 2017 11:10 Thomas frábær með tárin í augunum og Boston er búið að jafna metin Boston Celtic er komið aftur inn í rimmuna á móti Chicago Bulls eftir að lenda 2-0 undir. 24. apríl 2017 07:30 Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Fleiri fréttir Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Sjá meira
Sögulegur leikur Isaiah Thomas og Boston vann sjötta í röð Boston hafði betur gegn Washington í framlengdum leik og Golden State vann Utah. 3. maí 2017 07:01
Öruggt hjá Houston | Thomas stigahæstur þrátt fyrir systurmissinn Houston Rockets rúllaði yfir Oklahoma City Thunder, 118-87, í fyrsta leik liðanna í 1. umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 17. apríl 2017 11:20
Systir aðalstjörnu Boston lést í bílslysi Chyna Thomas, systir Isiah Thomas leikmanns Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta, lést í bílslysi í Washington í gærmorgun. 16. apríl 2017 11:10
Thomas frábær með tárin í augunum og Boston er búið að jafna metin Boston Celtic er komið aftur inn í rimmuna á móti Chicago Bulls eftir að lenda 2-0 undir. 24. apríl 2017 07:30