Krafðist gæsluvarðhalds yfir 17 ára hælisleitanda sem er andlega veikur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. maí 2017 19:12 Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. vísir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að 17 ára hælisleitandi sem kom hingað til lands þann 27. desember síðastliðinn skuli ekki sæta gæsluvarðhaldi en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafði krafist gæsluvarðhalds yfir piltinum. Lögreglan taldi nauðsynlegt að pilturinn færi í gæsluvarðhald þar sem hann hafði ekki virt ákvörðun lögreglu að halda sig á dvalarstað en ákvörðunin var tekin á grundvelli útlendingalaga. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að pilturinn hafi komið hingað til lands á fölsku vegabréfi ásamt öðrum karlmanni og stúlku. Þremenningarnir voru handteknir við komuna hingað til lands og hjá lögreglu gaf pilturinn ekki upp fæðingardag sinn heldur kvaðst 17 ára. Hann gat ekki sagt nákvæmlega til um hversu lengi hann hefði verið á flótta en taldi það vera um eitt og hálft ár. Skömmu eftir komuna til landsins sótti pilturinn um hæli hér en áður hafði hann sótt um hæli í öðru Evrópuríki en ekki kemur fram í hvaða landi það var. Þó kemur fram að norskur barnalæknir hafi gert aldursgreiningu á piltinum og segir í greinargerð lögreglu að norsk stjórnvöld telji hann vera tvítugan. Hins vegar kemur fram í gögnum málsins að barnalæknirinn geti ekki útilokað að pilturinn sé yngri en 18 ára en útilokar þó að hann sé yngri en 16 ára. Orð piltsins fyrir því hversu gamall hann er eru því lögð til grundvallar í úrskurði héraðsdóms og er hann því talinn vera 17 ára. Þá segir í niðurstöðu dómsins: „Samkvæmt 5. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016, um útlendinga, er aðeins heimilt að úrskurða umsækjanda um alþjóðlega vernd, sem er yngri en 18 ára en eldri en 15 ára, í gæsluvarðhald þegar hann hefur sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum. Fyrir liggur að kærði, sem ósannað er að sé orðinn 18 ára, hefur sótt um alþjóðlega vernd hér á landi.“ Að mati héraðsdóms verður ekki ráðið af gögnum málsins og greinargerð lögreglustjóra að slík ógn stafi af piltinum sem áskilin er í ákvæðinu. „Þá er í ákvæðinu áskilið að úrræðinu skuli því aðeins beitt að önnur vægari úrræði samkvæmt lögum um útlendinga eða barnaverndarlögum komi ekki til greina eða nái ekki því markmiði sem að sé stefnt. Auk þess sem taka ber tillit til aldurs umsækjanda og þarfa hans hverju sinni, en fyrir liggur að kærði á við andleg veikindi að stríða. Lögreglustjóri hefur hvorki með gögnum eða á annan hátt sýnt fram á að slík úrræði komi ekki til greina í tilviki kærða. Þá liggja ekki fyrir sannfærandi upplýsingar um að úrræði á grundvelli 114. gr. laga nr. 80/2016 hafi verið reynd til hlítar, en samkvæmt því ákvæði er heimilt að skylda útlending til að sinna reglulegri tilkynningarskyldu um veru sína hér á landi eða dveljast á ákveðnum stað að skilyrðum greinarinnar uppfylltum. Sú ráðstöfun lögreglu að skylda kærða til að dveljast innan dyra að [...] í Reykjavík, án möguleika á útiveru, brýtur berlega gegn kröfum um meðalhóf sem gæta ber að við slíka ákvörðun,“ segir jafnframt í úrskurði héraðsdóms sem lesa má í heild hér.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira