Skoðun

Tölvuleikir skáka tónlistinni

Björn Berg Gunnarsson skrifar
Tekjur af sölu miða á kvikmyndina Avatar náðu milljarði dollara á einungis 17 dögum um jólahátíðina 2009. Stórmyndin The Avengers náði því marki á 19 dögum. Milljarðinum var náð þremur dögum eftir útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto V.

Í örum vexti

Vöxtur tölvuleikjaiðnaðarins hefur verið mun meiri undanfarin ár en í heimi kvikmynda, ritverka og tónlistar. Skv. spá PWC fram til ársins 2020 heldur þessi þróun áfram, en nú þegar skapa tölvuleikir talsvert meiri tekjur en allur tónlistariðnaðurinn og kvikmyndahús samanlagt. Þetta kann að koma á óvart þar sem lítið er fjallað um leiki í fjölmiðlum en hvaðan koma allir þessir fjármunir?

Ólík þróun tónlistar og leikja

Tekjur tónlistariðnaðarins hafa dregist saman ár frá ári samhliða vexti stafrænnar dreifingar og eðlilega hafa tónlistarfólk og útgefendur af því miklar áhyggjur. Óumflýjanlegt er að framtíð tónlistar sé stafræn en Spotify, YouTube, Apple Music og fleirum gengur illa að skapa ásættanlegar tekjur. Við virðumst ekki vilja greiða jafn mikið og áður fyrir tónlist.

Þetta er ekki vandamál í tölvuleikjaiðnaðinum. Niðurhal, áskriftir og öpp hafa aukið tekjur iðnaðarins til muna og tekjumöguleikar útgefenda eru fleiri en áður. Fleiri en 20 milljónir áskrifenda greiða fyrir aðgang að PlayStation Plus þjónustu Sony, en auk þess fyrir staka leiki sem hlaðið er niður stafrænt. Tekjur tölvuleikjaþjónustunnar Steam nema um 3,5 milljörðum dollara, tvöfalt meiru en stafrænt streymi tónlistar skilar á heimsvísu. Raunar nær öll útgáfa tónlistar rétt sambærilegum tekjum og fást af tölvuleikjum í snjalltækjum, sem þó er einungis fjórðungur tölvuleikjaiðnaðarins.

Auglýsendur hafa áttað sig á þessum spennandi markaði og eyða nú um 70% hærri upphæðum í að koma vörumerkjum sínum á framfæri í tölvuleikjum en fyrir fimm árum síðan.

Tökum leikina alvarlega

Það skiptir í raun litlu máli hvort okkur finnst tölvuleikir kjánalegir og hvaða skoðun við höfum á þeim sem eyða í þá miklu fjármagni eða lifa jafnvel á að keppa á stórmótum. Þetta er mun stærri iðnaður en flestir gera sér grein fyrir og það er löngu tímabært að hann sé tekinn alvarlega.




Skoðun

Sjá meira


×