Sandra María með fyrsta markið sitt og Þór/KA vann sjötta leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2017 15:53 Sandra María Jessen. Vísir/Anton
Þór/KA náði aftur þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-1 sigur á ÍBV á Akureyri í kvöld. Þetta er sjötti sigur Þór/KA liðsins í sex leikjum. Breiðablik var komið á toppinn á markatölu eftir stórsigur á KR í gærkvöldi en norðankonur endurheimtu toppsætið með góðum sigri á Eyjakonum. Hulda Ósk Jónsdóttir, Stephany Mayor og Sandra María Jessen skoruðu mörk Þór/KA í dag. Hulda Ósk og Stephany Mayor hafa verið duglegar að skora í sumar en þetta var fyrsta mark Söndru Maríu eftir að hún snéri til baka eftir meiðslin sem hún varð fyrir í landsleik í Algarve-bikarnum í mars. Hulda Ósk Jónsdóttir kom Þór/KA í 1-0 á 18. mínútu eftir undirbúning Stephany Mayor en Sigríður Lára Garðarsdóttir jafnaði fyrir ÍBV úr vítaspyrnu á 37. mínútu. Þór/KA liðið hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í fyrstu sex leikjunum og þau hafa bæði komið úr vítaspyrnum. Staðan var 1-1 þar til níu mínútum fyrir leikslok þegar Stephany Mayor skoraði úr markteig eftir hornspyrnu Nataliu Gomez. Sandra María Jessen innsiglaði síðan sigurinn á 86. mínútu með laglegum skalla eftrir aðra stoðsendingu frá Gomez. Sandra María er öll að koma til en hún hefur komið inná sem varamaður í síðustu leikjum og lagði meðal annars upp mark í leiknum á undan. Sandra María kom inná sem varamaður í hálfleik í dag. Þetta var enn eitt stóra prófið sem Þór/KA liðið stenst með glans. Þór/KA hefur nú unnið heimaleiki á móti Val, Breiðabliki og ÍBV sem eru allt lið sem ætla sér mikið í sumar. Upplýsingar um gang leiksins eru meðal annars fengnar frá fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira