Ósigrandi Warriors-menn komnir með sópinn á loft Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. maí 2017 11:00 Þessir eru á leið í úrslitin þriðja árið í röð nema eitthvað stórkostlegt gerist. vísir/getty
Golden State Warriors er einum sigri frá úrslitaleik NBA-deildarinnar eftir tólf stiga sigur 120-108 gegn San Antonio Spurs á heimavelli Spurs í nótt en Warriors eru enn ósigraðir í úrslitakeppninni í ár. Spurs lék án síns besta leikmanns, Kawhi Leonard, annan leikinn í röð en eftir að hann fór útaf í fyrsta leik þar sem Spurs var með 25 stiga forskot hefur lið Spurs aldrei séð til sólar. Leikurinn í nótt var í raun síðasti leikur San Antonio til að gera þetta einvígi spennandi á ný og virtust leikmenn liðsins vita af því í upphafi leiks og leiddu að fyrsta leikhluta loknum 33-29. Þeir héldu því forskoti fyrstu mínútur annars leikhluta en hið gríðarlega vel mannaða lið Warriors tókst að snúa leiknum sér í hag og tók níu stiga forskot inn í hálfleikinn í stöðunni 64-55. Um tíma náði Warriors átján stiga forskoti í þriðja leikhluta en heimamenn náðu í raun aldrei að ógna forskoti þeirra af alvöru í síðari hálfleik og fór svo að Warriors-menn unnu sannfærandi sigur. Kevin Durant var stigahæstur í liði Golden State með 33 stig og 10 fráköst en gamli refurinn Manu Ginobili var stigahæstur í liði Spurs með 21 stig. Næsti leikur fer fram á mánudaginn og verður það að teljast líklegt að þar ljúki þátttöku Spurs-manna í úrslitakeppninni á þessu tímabili. Liðið hefur verið hálf rænulaust eftir meiðsli Leonard og hafa stjörnur á borð við LaMarcus Aldridge alls ekki stigið upp í hans fjarveru, í raun dregið sig inn í skelina þess í stað.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira